Morgunn - 01.12.1983, Síða 40
142
MORGUNN
og gæti það átt við ýms slys á sjó og landi. — Þess vegna
er það líka, að sumar spásagnir koma ekki fram, eða verða
með öðrum hætti, en að stefnir. — Hugleiðingar um þetta
efni væri í rauninni efni í langt mál.
C. Sannanir fyrir samhandi draumgjafa og draumþega
Þá vil ég segja nokkuð frá annari tegund drauma, þar
sem mjög skýrt kemur fram samband dreymandans við
draumgjafann, og þannig að nálgast fulla sönnun:
a. Mynd slcoöuð % draumi
Sá sem hér kemur við sögu, er mér kunnugur, og á
heima í Reykjavík. Eitt sinn, er hann kom heim úr vinnu
í hádeginu, lagði hann sig eftir matinn og sofnaði. Dreym-
ir hann þá, að hann er að skoða mynd af ákveðnum manni.
Nú vaknar þessi kunningi minn, og fer að hugleiða draum-
inn. Vissi hann, að hin draumséða mynd var af ákveðnum
manni, N.N. nokkrum, sem hann þekkti. Hann vissi líka,
að af þessum manni var aðeins til þessi eina mynd og að
hún var geymd hjá vini hans einum, sem átti heima á öðr-
um stað i Reykjavík.
Sá, sem drauminn dreymdi, brá við fljótt og ók heim tii
þessa vinar síns og sagði við hann: ,,Þú varst að skoða
myndina af honum N.N núna fyrir nokkrum mínútum.“
Vinurinn varð meira en lítið undrandi, en játaði, að
hann hefði einmitt verið að skoða þessa ákveðnu mynd
rétt áður.
b. Björgun barns í draumi
Mann einn dreymdi, að hann bjargaði barni úr straum-
hörðum læk. Nokkru eftir að hann vaknaði, frétti hann,
að einn nágranni hans hafði bjargað barni og að það hefði
einmitt borið við á sama tíma og draumurinn fór fram,