Morgunn - 01.12.1983, Síða 48
GUÐJÓN PÁLSSON:
FJÓRAR SÝNIR
GUÐJÓN PÁLSSON, höfundur eftirfarandi frásagna,
var fæddur að Arngeirsstööum í Fljótshlíð 2J/. júní 1865.
Hann byggði þurrabúð á Stokkseyri, sem nefndist Bakka-
gerði, bjó þar í fjöldamörg ár, stundaði sjóróðra á veturna
og vegavinnu á sumrin. Hann fluttist síðan til Reykjavikur
og var lengi vegavinnuverkstjóri hjá Vegagerö ríkisins.
Guðjón sá um veginn frá Reykjavílc austur yfir fjall, nið-
ur Karnba.
Guðjón Pálsson var mikill trúmaður. Hann var skyggn
frá œsku, hafði draumsýnir og dagsýnir. Tvö kver komu
út þar, sem hann lýsir reynslu sinni, hið fyrra var „Sjö
sýnir“ (Prentsmiðja Jóns Hélgasonar, 1936), en hið síðara
nefndist „Ellefu sýnir“, gefið út á kostnað höfundar árið
1949.
Guðjón orti mikið af trúarljóðum, sem birtust i Bjarma
og Vísi á árunum frá því um 1930 og fram á fimmta ára-
tuginn. Tvö hefti með Ijóðum hans voru gefin út. — Guð-
jón lést 8. febrúar 1955.
Dóttursonur Guðjóns Pálssonar, dr. Einar lngi Siggeirs-
son, hefur góðfúslega veitt mér leyfi til að birta eftirfar-
andi lýsingar úr kverinu „Ellefu sýnir“. Ég þakka honum
jafnframt ofannefndar uyylýsingar um afa hans.
Ritstjóri