Morgunn - 01.12.1983, Page 55
RITSTJÓRARABB
157
manna og viðhorfum þeirra til dulrænna fyrirbæra. Könn-
un þessi vakti almenna athygii og hefur oft verið í hana
vitnað. Ritaði Erlendur bók um þessa rannsókn sem hann
nefndi „Þessa heims og annars“.
1 framhaldi af þessari könnun var gerð viðtalskönnun
á reynslu manna af huglæknum og önnur á reynslu af
látnum. Vonandi fáum við síðar meir að heyra eitthvað
nánar um þessar rannsóknir hér í Morgni. Þá gerði dr.
Erlendur nokkrar rannsóknir og tilraunir með Hafsteini
Björnssyni miðii og ritaði um þær fjórar greinar í erlend
fræðirit og hefur ein þeirra birst á íslensku. Auk alls þessa
hefur dr. Erlendur gert fjölda minni rannsókna og tilrauna
og alveg nýverið lokið samningu bókar um indverska
kraftaverkamanninn Sathya Sai Baba sem hann hefur
haft veruleg kynni af.
Vísindaleg starfsemi er ávalt kostnaðarsöm. Greiða þarf
laun aðstoðarmanna, úrvinnsla gagna fer oft fram í töivu
og það kostar fé auk ýmis annars kostnaðar.
Sjóður til rannsókna í dulsálarfrœði var stofnaður fyrir
nokkrum árum til að styrkja rannsóknir við Háskólann.
Þótt tiltölulega lítið fé hafi borist sjóðnum, hefur það engu
að síður verið ómetanleg hjálp. Ritstjórinn vill nú eindregið
benda lesendum Morguns á þennan sjóð ef þeir vilja styrkja
áframhaldandi rannsóknir.
Sjóðurinn tekur með þökkum við smáum gjöfum sem
stórum. Þær má leggja inn á gíróreikning sjóðsins nr.
606006 í öllum bönkum, pósthúsum og sparisjóðum. Stjórn
sjóðsins skipa þeir dr. Erlendur Haraldsson, dr. Amór
Hannibalsson dósent og dr. Þór Jakobsson og veita þeir
góðfúslega frekai'i upplýsingar.
Hægt er að arfleiða sjóðinn að fé og eignum. Væri ákaf-
lega vel þegið ef menn minntust sjóðsins þegar þeir semja
erfðaskrár sínar.
Dr. Erlendur er nú þegar kunnur um víða veröld fyrir
rannsóknir sínar og ættu íslendingar að fagna því að geta
notið forystu hans í þessum efnum.