Morgunn - 01.06.1985, Page 13
löngu liðnum atvikum úr ævi þess og lýsa þeim stöðum og
því umhverfi, þar sem það átti heima á meðan það lifði á
jörðinni. Oft er hægt að ganga úr skugga um það, að mið-
illinn hafi aldrei séð þetta fólk á meðan það lifði né haft
nein kynni af ævi þess og kjörum.
2. Dvdheyrnir (Ciairaudience). Svo er það nefnt, er menn
heyra raddir, annarleg hljóð, umgang, högg og þess háttar,
sem ekki eiga sér eðlilegar orsakir. Skylt þessu er og það,
er menn skyndilega finna sterkan ilm eða bragð, án þess
unnt sé að gera grein fyrir, frá hverju það stafar.
3. Fjarhrif (Telepathy) eru einu nafni nefnd margs kon-
ar áhrif, sem til manna berast úr svo mikilli fjarlægð, að
útilokað er, að þau berist skynfæraleiðina. Ein tegund fjar-
hrifa er hugsanaflutningur, þegar hugsun berst frá einum
hug til annars, oft um órafjarlægðir. önnur er fjarskyggni
eða fjarheyrnir, er menn sjá og heyra atburði, sem eru að
gerast langt í burtu. Þriðja tegundin er forvitrun (Precogni-
tion), er menn vita og segja fyrir óorðna hluti.
Fjarhrifin, sem oft eru nefnd ESP-fyrirbæri (Extra
sensory perception), hafa verið afar mikið rannsökuð á
síðustu áratugum. Við þær rannsóknir hafa fengizt ýmsir
heimskunnir vísindamenn og má meðal þeirra einkum
nefna dr. J. B. Rhine við Duke-háskólann í Ameríku og dr.
Soal í Englandi. Tilraunir dr. Rhine hafa verið sérstaklega
yfirgripsmiklar og itarlegar og hafa þegar leitt til þess, að
það er talið með öllu vísindalega sannað, að ESP-fyrirbæri
eða skynjanir án verulegrar hjálpar skynfæranna eigi sér
stað á ýmsum og raunar alveg ótrúlegum sviðum. Væri
freistandi að iýsa þessum rannsóknum nánar, en það mundi
lengja mál mitt um of. Rétt er þó að geta þess, að fjar-
hrifin virðast vera miklum takmörkunum og erfiðleikum
bundin. I fari sumra manna sýnast þau naumast merkjan-
leg. En hjá öðrum sýna líkindaútreikningar ótvírætt, að
þau eiga sér stað í ríkum mæli.
4. Hlutskyggni (Psychometry) er sá hæfileiki nefndur,
er menn geta sagt sögu hlutar, sem þeim er fenginn í hend-
Morgunn
11