Morgunn - 01.06.1985, Page 18
Þessi fyrirbæri eru af mörgum talin ein traustasta sönn-
unin fyrir framhaldslífi, enda verður öðrum skýringum,
t. d. um fjarhrif, undirvitund og þess háttar, þar ekki komið
við þannig, að unnt sé að gera þær sennilegar.
3. Margt í hinum nýjustu rannsóknum á fjarhrifum og
hinum svonefndu ESP-fyrirbærum bendir sterklega í þá
átt, að starf vitundarinnar og heilans þurfi ekki ávallt að
fylgjast að og að heilinn sé tæki, sem sál mannsins notar
í þessu jarðlífi, en skapi ekki sjálfur né framleiði á sitt ein-
dæmi hugsunina og það sem við nefnum persónuleika
mannsins. Og þetta er því athyglisverðara, þar sem marg-
ir hafa beitt þessum rannsóknum einmitt í þeim tilgangi
að afsanna kenningar spíritista og finna aðrar skýringar
hinna sáirænu fyrirbæra.
4. Allur þorri hinna dulrænu fyrirbæra er þannig, að
þau gera beinlínis sjálf kröfu til þess, að þau starfi frá
framliðnu fólki. Á þessu atriði eiga andstæðingar spíritis-
mans erfitt með að gefa fullnægjandi eða eðlilega skýringu.
Það er engin leið til þess að stimpla alla miðla sem auðvirði-
lega loddara né heldur reynslu þúsunda manna sem ein-
bera blekkingu. Menn sjá látna menn í sýn og þekkja þá
greinilega. Miðlar lýsa framliðnu fólki, sem þeir aldrei
hafa augum litið á meðan það lifði hér á jörð, né heldur
hafa þeir séð af því ljósmyndir eða aðrir lýst því fyrir
þeim. Þeir segja rétt til um nöfn látinna manna og skyld-
leikasambönd við einstaka fundargesti. Þeir lýsa rétt löngu
liðnum atvikum úr lífi þessa framliðna fólks, stundum at-
vikum, sem viðstaddir ekki kannast við, en síðar sannast,
að i alla staði hefur verið rétt skýrt frá af miðlinum.
5. Loks hefur svo hin mikla og sívaxandi mergð fyrir-
bæra þessarar tegundar að sjálfsögðu í för með sér síaukið
sannanagildi.
Mörg fleiri rök færa spíritistar fyrir máli sínu um fram-
haldslíf og samband við hina látnu, en ekki er rúm til að
rekja þau nánar hér.
Og nú langar mig til þess að spyrja þig, skynsaman,
16
MORGUNN