Morgunn - 01.06.1985, Page 78
„Þetta er ekki satt, hún fór í bingó og skildi mig eftir
heima.“
Ég gat ekki slökkt á þessu sambandi og gat ekki stjórn-
að þessu og það getur verið hættulegt. En röddin hélt
áfram að kvarta yfir meðferðinni á sér og hvað hefði
verið hugsað illa um sig.
Þetta tók átta mánuði og það kom fyrir þegar við fórum
á bjórkránna með kunningjunum, að faðir eins þeirra
birtist og hann var miklu áhugaverðari en sonurinn og
þetta olli því, að við misstum mikið af okkar vinum, því
að þeim stóð ekki á sama um þessa hæfileika mína og urðu
dauðskelkaðir. Ég gerði mér þá grein fyrir því hvað það
var mikilvægt, að geta stjórnað þessu og mér tókst það
með þvi, að vera ákveðin og tala við þá og segja þeim að
þetta væri ekki rétt og hvorki staður né stund og ég yrði að
fá frið til að lifa mínu lífi hér á jörðinni. Ég starfaði meira
og meira í kirkjunni sem lækningamiðill og ræðumaður
og gekk það mjög vel og komu miklar sannanir fram og
síðan hefur þetta aukist og styrkst.
Ég kynntist Gordon Higginson, sem er einn þekktasti
miðill Englands og var boðin til að vinna í hans kirkju í
Longton. Þegar miðlum er boðið til Longton, þá verða
þeir taugaóstyrkir, hvort þeim muni takast nægilega vel
upp, því Gordon hefur þá hæfileika, að geta séð líka og veit
hvort rétt sé með farið. En Gordon er dásamlegur maður
og mjög hjálpsamur. Eftir þessa heimsókn sem gekk mjög
vel, þá hófst góður kunningsskapur á milli okkar sem hefur
staðið síðan.
Það, að ég skyldi vera við dauðans dyr og lifa þetta af
er eitt það merkilegasta sem ég hef gengið í gegnum og
það hlýtur að vera stjórnað af einhverjum æðri máttar-
völdum og ég held að þetta sé dásamlegasta veröld og
við verðum að kenna fólki það að njóta þess að lifa.
Það að geta séð og heyrt í öðrum heimi er dásamleg gjöf
og hvert skipti sem ég stend fyrir framan hóp af fólki,
þá finnst mér að ég sé að þakka fyrir lífgjöfina. Ef gamli
76
morgunn