Morgunn - 01.06.1985, Blaðsíða 85
Hver maður án tillits til kynþáttar, litarháttar eða trú-
arbragða hefur möguleika á að reyna raunveruleika dul-
rænna fyrirbæra og hafa samband við manneskjur sem
lifað hafa á þessari jörð og lifa nú á sviðum annarar tíðnar.
öll starfsemi miðla er opin fyrir nákvæmri rannnsókn,
þær sannanir sem boðið er upp á er hægt að rannsaka
vísindalega til sönnunar eða afsönnunar tilveru vitundar-
lífs handan hins efnislega heims.
Spíritisminn er þess vegna grundvöllur einnar hinna
mestu vísindagreina, því hann gefur sýn inní andlegan
raunveruleika og nánari skilning á hinni miklu orku alls
lífs sem aðeins miðlar geta séð.
Spíritisminn hefur verið kallaður heimspeki og það er
hann. Því að ákveðin heimspeki liggur í spíritismanum
og er hluti hans.
Heimspeki er „lífskoðun og lífsgildi manns“. Hversu
betri ástæðu getur maður haft til að lifa betra lífi, en að
reyna raunveruleika eilífs lífs?
Spíi’itisminn býður eitt besta tækifæri til eigin þroska,
hversu erfitt sem það kann að vera, því hann tekst á við
skiininginn á iífinu sjálfu.
Lífið er áframhaldandi hreyfing. Það er endalaus birt-
ing orku sem býr innra með og knýr áfram alla hluti.
Mörgu fólki er ókunnugt um hinn sanna raunveruleika
lifsins, raunveruleika Guðs og andlegra hluta lífsins. Þess
vegna eru sannanir spíritismans gullið tækifæri til að snúa
hjörtu og sjónum manna frá efnislegum hlutum til eilífra
hluta Guðs.
Tökum til dæmis breytinguna sem var á Páli postula
vegna reynslunnar sem hann var fyrir á veginum til
Damaskus. Við lesum um það að viðhorf hans fyrir þenn-
ann atburð var hatursfullt til kristinna manna. Hann ætl-
aði sér að refsa þeim réttlátlega. Á rykugum veginum um-
tnyndaðist hann úr ,,syndara“ í ,,dýrðling“. Af hverju
snerist lífsviðhorf hans frá hatri til kærleika? Vegna þess
að hann sá sýn af manni sem hafði dáið ekki löngu áður.
morgijnn
83