Morgunn - 01.06.1985, Page 104
Má þar nefna: Guðmund Einarsson, Ævar R. Kvaran,
Hafstetin Björnsson, örn Guðmundsson og konu hans,
Srlu Stefánsdóttur, Ólaf Tryggvason, Þórarin Jónsson,
Sören Sörenson, Guðmund Jörundsson, Ólaf Jenson, Svein
Ólafsson, Helga Haraldsson, Jón Sigurgeirsson og prest-
ana, séra Svein Víking, Benjamín Kristjánsson, Sigurð
Hauk Guðjónsson, Sveinbjörn Sveinbjörnson, Þóri Stephen-
sen og Jón Thorarensen, sem hefur heimsótt okkur tvívegis.
2. Skyggnilýsingar veitti Hafsteinn Björnsson miðill
okkur á hverju ári, meðan hans naut við og einnig fundi
fyrir félagsmenn í Reykjavík.
3. Huglæknar hafa starfað mikið á vegum félagsins. Má
þar nefna þær Hamblings-mæðgur, Joan Reid og Ólaf
Tryggvason, sem vann mikið að huglækningum hjá félag-
inu og stofnaði nokki'a bænahringa.
4. Transfundir hafa verið haldnir fyrir félagsmenn. Fyrst
af Horace S. Hambling, þá af Hafsteini Björnssyni og síð-
ast Björgu S. Ólafsdótur. Hún kom fyrst til okkar til þess
að halda miðilsfundi fyrir okkur á Selfossi í júní 1973.
Síðan kom hún til okkar á hverju ári og dvaldist hjá okk-
ur 1—2 vikur í senn og hélt tvo fundi á dag. Eitt árið kom
hún til okkar 5 sinnum til þess að halda fundi, og síðast
kom hún til okkar og hélt fundi fyrir félagsmenn sumarið
1979.
Reiknast mér til, að hún hafi á þessum sjö árum haldið
hjá okkur á Selfossi 204 miðilsfundi og fundarmenn hafi
verið alls nær 900. Mjög margir þeirra höfðu ekki áður
átt þess kost að sitja miðilsfund og fengu þarna í fyrsta
sinn að kynnast af eigin raun sambandinu við heim fram-
liðinna.
Hefur starf Bjargar verið félaginu alveg ómetanlegt,
enda er það staðreynd, að erfitt er að halda úti slíku félags-
starfi nema eiga kost á einhvers konar miðilsþjónustu.
Haustið 1983 gaf formaður félagsins, Guðmundur Krist-
insson, út bók, sem hann hafði ritað um 43 ára miðils-
þjónustu Bjargar. Þar segir hann frá skyggni Bjargar og
102
MORGUNN