Morgunn - 01.06.1997, Qupperneq 24
S.R.F.H. 30 ára
Mestrar hylli njóta, varðandi skyggnilýsingar, þau
María Sigurðardóttir og Þórhallur Guðmundsson.
Góðir erlendir miðlar hafa og sótt okkur heim í vax-
andi mæli.
Talsvert hefur verið notað form umræðufunda um
tiltekin mál. Flutt hafa verið stutt erindi, síðan fyrir-
spurnir leyfðar og svör veitt af frummælanda eða
frummælendum og öðrum fróðum mönnum. Hér
höfum við mjög notið Úlfs Ragnarssonar, sem máls-
hefjanda og/eða spyrjanda og sem erindaflytjendur
eða viðmælendur hans, má sem dæmi nefna:
Guðmund Einarsson, Gunnar Dal, Sigurð Hauk
og Einar Aðalsteinsson.
Allir lærðir vel og ljúfustu menn.
En að baki þessu hefur alltaf verið sá grunntónn að
vekja og leiðbeina hugum hlustenda upp, upp og
fram. Hærra minn guð til þín og hvatning um, að
hver kynnist sjálfum sér og leiði hugann að hvaðan
hver einn komi, hver hann sé og hvert ferðinni sé
heitið og getum leitt að því hvað við taki þá gangan
hér er gengin á enda.
Að því stefnt, eftir bestu getu, að þátttakendur
ættu sér, í sinni daglegu baráttu, sumar innra, fyrir
andann, þótt úti herði frost og kyngi snjó.
Um gildi þessa eða árangur liggur ekki á lausu. En
viturlegar vangaveltur um lífið og tilveruna eru til
þess fallnar að varpa nýju Ijósi inn í dimmuna, sem
löngum ríkir, og gefa sýn til nýrra sólarlanda.
Alla tíð hefur söngur verið í hávegum hafður í fé-
laginu. A hverjum fundi hafa fundarmenn sungið
sálma, er í upphafi til þess voru valdir af Hafsteini
Björnssyni. Yfirleitt 2-3 á fundi hverjum. Tilheyrandi
22 MORGUNN