Útvarpstíðindi - 03.02.1941, Blaðsíða 5
HALLGRÍMUR HELGASON
TÓNSKÁLD
Veturinn 1937 barst sú fregn heim
til íslands, að ungur íslenzkur náms-
maður í Þýzkalandi hefði vakið á sér
eftirtekt fyrir frumsamin tónverk.
Þessi maður var Hallgrímur Helga-
son, sem þá stundaði nám við Landes-
konservatorium í Leipzig. Hann út-
skrifaðist héðan úr menntaskólanum
1933 og sigldi skömmu síðar til náms,
fyrst til Kaupmannahafnar, en síðar
til Leipzig. Þar hafði hann dvalið í
31/2 ár og stóð til, að hann lyki prófi
fljótiega, en varð að hverfa heim
áður, vegna styrjaldarinnar.
Verk þau, sem H. H. samdi í
Þýzkalandi voru:
Tvær sónötur fyrir píanó, Til-
brigði við eigið tema fyrir píanó, Is-
lenzk svíta fyrir fiðlu og píanó og
kanonisk tilbrigði fyrir strokkvart-
ett við gamalt passíusálmalag.
Síðan Hallgrímur kom heim, hefur
hann samið fjöldamörg lög — eitt-
hvað um 90 talsins —. Er hann því
vafalaust eitt allra mikilvirkasta tón-
skáld, sem nú er uppi með okkar
þjóð.
Sum af verkum hans hafa hlotið
ótvíræða viðurkenningu, enda er
hann talinn mjög vandvirkur.
Meðal þess, sem nýlega hefur birzt
eftir Hallgrím, er: ,,Sónata fyrir
píanó“, „Fjögur sönglög", „Fjögur ís
lenzk þjóðlög", „Islands Hrafnistu-
menn“ og „Þriátíu smálög“.
En meðal þess, sem óprentað er,
má helzt nefna:
„Heilög vé“ sem samið var í til-
efni af vígslu nýju háskólabygging-
arinnar, „Átta sönglög" fyrr karla-
kóra, „25 endursamin íslenzk þjóð-
lög“, „Fimm sönglög fyrir blandaðan
kór“ og „10 létt lög fyrir píanó“.
Af framangreindu sézt, að H. H.
er mjög mikilvirkur tónlistarhöfund-
ur, sem líklegur er til að eigi merki-
lega framtíð. Og sérstök ástæða er
til að fagna því, að hann er einn
hinna fyrstu Islendinga, sem þegar
á unga aldri hefur notið staðgóðrar
fræðslu í tónfræði, en sem kunnugt
er hefur þekkingarleysi mjög háð
ýmsum af okkar gömlu og góðu tón-
skáldum.
I ritdómum, sem birzt hafa um
verk H. H., hefur verið lögð áherzla
á, að verk hans væru auðug að liljóm-
rænni fjölbreyttni og litauðgi, en
jafnframt bent á hinar beinu, sléttu
línur í lögum hans.
Hallgrímur Helgason flytur er-
indi í útvarpið. föstudaginn 14. febr.
Þar ræðir hann um iökun tónlistar
almennt.
VEGNA FORFALLA
RJTSTJÓRANS
getur blaðið ekki komið út í
næstu viku, en í stað þess er
blaðið töfalt að þessu sinni og
með helmingi fleiri myndum
en venjulega. Biðjum vér kaup-
endur velvirðingar á þessu.
ÚTVARPSTÍÐINDI
237