Útvarpstíðindi - 03.02.1941, Blaðsíða 20
Tórnas Ouðmundsson:
KVEÐJA TIL ÞJÓÐARI N NAR
(Mœlt fyrir munn útvarpsmanna).
I.
Vér heilsum vorri þjóð, og þér
er þetta minni fært.
pó gleymist margt, sem gengið er,
skal glaðst við það, sem eftir fer.
Og allt, sem hug og hjarta er kært,
skal helgað þér!
n.
Við vitum ttll að ýmislegt
var öðruvísi en bar,
og játum þessa þungu sekt.
Við þrautreyndum í okkar nekt
að glæða okkar gáfnafar,
en gekk það tregt.
Mörg truflun hátt í hlustir skar,
en hitt var líka þrátt,
að dagskráin svo vesöl var
að versta truflun margfalt bar
af hinu, sem að hefði átt
að heyrast þar.
En þó að gengi ýmsu á,
er annað meira vert:
Ef árangur má einnig sjá
og eyrum fólksins tekst að ná
með því, sem ekki er illa gert
og endast má!
m.
Nú herjar veröld heift og stríð.
En hér skal okkar mið,
að fylkja öllum frónskum lýð
við fjall og strönd og höfin víð
um nýja menning, frelsi, frið
og fegri tíð.
Og brenni hér hin bjarta glóð,
og birti yfir senn!
Og mál og saga, list og ljóð,
skal lyfta héðan vorri þjóð
með hverri kynslóð hærra en
hún áður stóð.
Og þeirrl trú við hittumst hér
og heilsum þér í kvöld,
að íslenzk menning sóml sér
í sveit með því, sem tignast er
f menning heims á hverri öid.
— Vér heilsum þér!
252
ÚTVARPSTÍÐINDI