Útvarpstíðindi - 03.02.1941, Blaðsíða 7
BARNATÍMI „VÖLSUNGA“
Foringi: Jónas B. Jónsson
kennari.
Útvarpstíðindi báðu Jónas um upp-
lýsingar um félag „Völsunga", og
segist honum svo frá:
Skátafélagið ,,Völsungar“ er lítið
og fámennt félag, enda aðeins 3ja ára
gamalt. Heimilisfang þess er Lauga-
nesskólinn í Rvík.
Jón Sigurðson skólastjóri stofnaði
félagið 22. febr. 1938 með 9 drengj-
um úr skólanum, og tóku þeir nýliða-
próf þann dag. Smátt og smátt hef-
ur svo bætzt í hópinn, og nú eru 29
drengir í félaginu. Stofnendur félags-
ins eru allir komnir í aðra skóla, en
samt eru þeir hvað áhugasamastir og
kenna nú yngri félögum sínum undir
próf.
Vor og haust förum við í ferðalög,
lengri og skemmri, gangandi, hjól-
andi eða á bíl, ef langt er farið. Oft-
ast höfum við tjald eða tjöld með, og
stundum er gist í þeim. En nú er
það venja skáta í útilegum, er þeir
koma í tjaldstað að kvöldi, og snæð-
ingi er lokið, að kveikja bál skammt
frá tjöldunum. Síðan setjast skátarn-
ir kringum bálið — við varðeldinn.
Þar eru svo sagðar sögur, lesin
kvæði, gátur ráðnar og sungið. Það
er ein skemmtilegasta stund í útileg-
unum. En varðeld er ekki hægt að
kveikja nema í góðu veðri. En hin
sunnlenzka tíð gefur ekki alltaf þurr
og góð kvöld, og við Völsungar höf-
um alltaf lent í rigningu, svo að al-
drei hafa verið kveikt bál í okkar
ferðalögum. En hvað áttum við þá að
gera? Einn fann þá upp á því snjall-
ræði að hafa kvöldvöku. Á kvöldin
hafa allir ferðalangarnir safnazt
saman inni í stærsta tjaldinu. Tveir
eða þrír drengir hafa séð um slcemmti
atriði kvöldvökunnar — kvöldvöku-
ráð —. Á kvöldvökunni eru svo lesn-
ar upp sögur eða kvæði, palladómar
um félagsmenn, tilkynningar um eitt
eða annað, sem við hefur borið, aug-
lýsingar um týnda muni o. fl. Þess
á milli er sungið, — en söngurinn er
óæfður og stundum ósamhljóma, en
við syngjum samt og skemmtum okk-
ur. Palladómum, auglýsngum, til-
kynningum o. fl. er safnað saman, og
birtist það^ í útlegumannablaði Völs-
unga, sem heitir „Úrgangur".
í þessum barnatíma ætla Völsung-
ar að vita, hvort krakkar hafa nokk-
urt gaman af að heyra brot úr kvöld-
vöku okkar. En það er ekki hægt að
taka nema lítinn hluta af okkar efni,
því að mikið af því er bundið við um-
hverfi, stað og tíma.
ÖTVARPSTÍÐLNDX
239