Útvarpstíðindi - 03.02.1941, Blaðsíða 6
Nýjasta bók Vilhjálms Stefánssonar:
„Ultima Thule“.
Dr. phil. Quðm. Finnbogason
flyttur erindi um bókina.
Vilhjálmur Stefánsson
Þriðjudaginn 11. febrúar flytur dr.
phil. Guðmundur Finnbogason lands-
bókavörður erindi um nýjustu bók
Vilhjálms Stefánssonar, U Itima
T hule . — Fjallar hún um það m.a.
hvort Pyþeas frá Massilíu, frægur
stjömufræðingur og stærðfræðing-
ur, samtíðarmaður Alexanders mikla
(uppi 330 f. Kr.), hafi komið til Is-
lands á síðasta þriðjungi 4. aldar
f. Kr.
Nafnið Thule var hið forna heiti
á norðlægustu löndunum, og hefur
um það verið deilt, hvort með því
hafi verið átt við Noreg, Hjaitland
eða ísland. En það þykir sennilegt,
að samgöngur og siglingar hafi átt
sér stað milli Islands og Bretlands-
eyja löngu fyrir Krists burð.Um þetta
og þá farkosti, sem notaðir voru til
þessara ferða ræðir Vilhjálmur
Stefánsson m. a ' bók sinni. Eins er
rætt um ferð Kólumbusar til Islands.
En í ævisögu Kólumbusar, sem er rit-
uð af Ferdinand syni hans, er það
fullyrt, að hann hafi komið hingað
árið 1477.
Myndir, sem til eru af fornum bát-
um, sýna að þessir farkostir gátu
verið ótrúlega stórir, og hafa rann-
sóknir leitt í ljós, að til hafa verið
skinnbátar hjá steinaldar-fólki, t. d.
Eskimóum, sem hafa borið allt að 70
manns.
Hér birtast tvær myndir úr bók
Vilhjálms og er sú fyrri af svoköll-
uðum Curragh, en það er skinnbát-
ur með grind í, og er myndin tekin
eftir írskum peningi frá 200 f. Kr.
Seinni myndin er af forngrískri her-
galeiðu (frá um 300 f. Kr.).
238
ÚTVAEPSTlÐINDI