Útvarpstíðindi - 12.12.1941, Blaðsíða 18
Lára Magnúsdóttir
Ingibjörg Jónasdóttir
Sigrún GÍ8ladótiir
Það er vafalaust einkennandi fyrir
skapgerð íslandinga, að þátturinn
„Takið undir“ hefur orðið einn vin-
sælasti dagskrárliðurinn í sögu íslenzka
útvarpsins. Þjóðkórnum hefur hlotnazt
sú hamingja að rata beint að hjarta-
rótum þjóðarinnar og endurvekja þjóð-
legan söng um land allt.
Utvarpstíðindi vilja nú til hátíða-
brigða birta spjall við forystumann
kórsins, Pál ísólfsson tónskáld, og birta
jafnframt myndir af öllum forsöngv-
urunum.
Páll ísólfsson er léttur í máli og
spaugsamur, eins og hlustendum er
kunnugt, og kveðst hafa ánægju af því
að senda lesendum Útvarpstíðinda
kveðju guðs og sína og láta skjalfesta
gleði sína yfir hinum ágætu viðtökum,
sem forsöngvararnir í útvarpinu hafa
hlotið.
— Þetta örvar okkur sannarlega,
Páll ísólfsson.
DJÓDK
.... Kið finnum að þjóðin
er í þjóðkórnum.... Það er heilstí'
segir Páll, — við finnum, að þjóðin er
söngvaglöð, og hvert mannsbarn á
landinu er í þjóðkórnum. Það væri
annars undarlegur maður, sem væri á
móti þjóðkórnum, — hann væri á móti
sjálfum sér. Við fundum fljótt, að sleg-
ið var- á rétta strengi, bréf tóku að
streyma til okkar, þakkarbréf, elsku-
leg bréf, ég vil reyndar ekki segja ást-
arbréf, en ástúðleg og örvandi.
Ókunnugt fólk stöðvaði mig á götu
og vottaði mér þakklæti fyrir stjórnina
á kórnum, og svona höfum við lifað í
dýrðlegum fagnaði og komið í góðu
skapi í útvarpið. Við erum líka venju-
lega að halda eitthvert afmæli, og ekki
dregur það úr samstillingunni. Næst
ætlum við að biðja þjóðina að taka
undir 20. desember á afmæli sjálfs Rík-
isútvarpsins.
Hvað eru forsöngvararnir margir í
kórnum ?
— Við erum nú venjulega þessi 10. ■
Það er ekki nema á hátíðum, að mér
hlotnast sá heiður, að hafa útvarps-
stjóra og útvarpsráð með í kórnum. —
Annars syngur það auðvitað heima hjá
sér eins og önnur börn þjóðarinnar. í
útvarpsráði eru ágætir söngkraftar, og
ég vona, að ég móðgi ekki neinn, þó