Útvarpstíðindi - 06.12.1943, Síða 11
P'gc/r.ri lienónýxton:
Hvernig starfar útvarpið?
Inngangsorð.
Það hefur löngum vcrið einkcnni ís-
lenzkra alþýðumanna, að kunna skil á
þeim hlutum, er þeir nota við vinnu
sína, eða hafa undir höndum. Bóndinn
kann á sláttuvélina sína, ökumaðurinn
á bifreiðina sína, og vélamaðurinn á vél-
ina í bátnum sínuin, o. s. frv., og þessi
kunnátta takmarkast ekki af því sem
nauðsynlegt er að vita, til þess að geta
notað þcssi áhöld og vélar, heldur hafa
menn sett sig inn í starfsemi þeirra og
skilið þýðingu hvers einstaks vélarhluta
og þcss vegna verið færir um að lagfæra
ýmislegt, cr aflaga liefur farið, auk þcss
sem slík kunnátta er mikil trygging fyr-
ir réttri meðferð og hirðingu verkfær-
anna.
Þessi viðlcitni manna til að skilja fyr-
irbæri daglcgs lífs og eðli hlutanna í um-
hverfinu, hefur talsverða menningarlega
•þýðingu. Aftur á móti hafa þeir hlutir.
cr menn bera ekkert skynbragð á, lam-
andi áhrif á dómgreind manna og athug-
unargáfu, ef ínenn hafa þá daglega fyr-
ir augum.
Því miður verður því ekki neitað, að
þannig er því farið með útvarpið. í aug-
um almennings er útvarpsviðtækið hálf-
gert galdraverkfæri, sem bezt er að ciga
sem minnst við, og starfsemi þess og
innri bygging. leyndardómur, sem ekk-
ort þýðir að brjóta heilann um.
Það mun vera almenn skoðun, að þctta
sé oðlilegt, þar sem hin tæknilega hlið
Eggert Benónýsson
forstöðumaður viðgerðastofu útvarpsins.
útvarpsstárfseminnar sé svo torskilin,
að ckki sé öðrum en fagmönnum ætlandi.
að gera sér grein fyrir henni. En liitt
mun þó valda meiru hér um, að almenn-
ingur á livergi aðgang að neinum fróð-
lcik í þessum efnum.
Nú hefur talazt svo til, að ég gerði
þessu efni nokkur skil í Útvarpstíðind-
uín, og geri ég ráð fyrir að haga því þann-
ig, að lýsa fyrst í stórum dráttum, livern-
ig útvarpsdagskráin flyzt frá útvarps-
sölunum til eyrna hlustendanna, og er
sá kafli ætlaður til fróðlciks cingöngu.
En síðar mun ég taka útvarpsviðtækin
til ýtarlegrar meðferðar, og er svo til
ætlazt, að sá kafli hafi einnig liagnýta
þýðingu fyrir útvarpsnotendur.
<>]iiiuiiiiiiitiiiiiiiiiiiiinniiiiiiiiiiDiiiiiiiiaiiiiiiiiiuit]iiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiit<s>
Nýjasta, fallegasta og
skemmtilegasta bókin
heitir
JAKOB OG HAGAR
•>]iiiiiii!iiiiniiiiiiiiimt]miiiiiiiiiniiiiiiiiuiiiiiiiiii!ic]iiiiiiiiiiiiuunumiiit<>
ÚTV ARPSTÍ ÐINDI
111