Útvarpstíðindi - 06.12.1943, Page 14
... Hér starfar leikhús, sem
hefur verið rekið af svo
gífurlegum áhuga, að eins-
dæmi mun vera og ósam-
bærilegt við leiklistarstarf-
semi meðal annara þjóða ..
segir Lárus Pálsson.
Á árunum 1935 og' 193ö tóku að ber-
ast frá Kaupmannahöfn liingað heim
fregnir af ungum íslending, som stund-
aði leiklistarnám við Leikskóla konung
lega leikhússins í Höfn. Fregnirnar báru
ineð sér, að af þéssum pilti væri væhzt
góðra hluta á því sviði, er hann hafði
valið sér. Þetta var Lárus Pálsson, sem
nú er kominn í fremstu röð íslenzkra
leikara, og varð þjóðkunnur fyrir leik-
starfsemi, brátt eftir að hann kom heim
til íslands með Petsamoförunum árið
1940.
Lárus er nú leiklistarráðunautur út-
varpsins, eins og áður hefur verið getið
hér í blaðinu. Hann hefur stjórn á jóla-
leikriti útvarpsins í ár, en það verður
Orðið, eftir Kaj Munk.
Ég hef hitt Lárus að máli og rabbað
við hann fram og aftur um liorfur í leik-
listarmálum okkar, um útvarpsleikrit og
tilraunir útvarpsins um leikritaflutning.
— Fer hér á eftir ýmislegt, sem bar á
góma:
Lárus Pálsson er fæddur Iieykvíking-
ur. En foreldrar hans Jóhanna Þorgríms-
dóttir frá Ormarslóni í Norður-Þingeyj-
arsýslu og Páll Lárusson trésmíðameist-
ari, ættaður úr Skaftafellssýslu, sonur
Lárusar Pálssonar hómopata, sem var
114
Lárus Pálsson í leikbúningi.
víðkunnur fyrir lækningar sínar og á-
trúnaðargoð almennings. Lárus stund-
aði menntaskólanám í Reykjavík og tók
stúdentspróf. Mun hafa verið ætlunin,
að hann yrði læknir, en á námsárunum
hneigðist hugur hans að bókmenntum.
hljómlist og leiklist. — Að loknu stúd-
entsprófi sigldi hann til Hafnar til leik-
listarnáms, en fekk styrk hjá Mennta-
málaráði til ])ess jafnframt að lesa heim-
speki og fagurfræði. Þessi fög lagði Lár-
us þó á hilluna, en gaf sig óskiptan leik-
listinni á vald. íslendingar háfa liaft þá
sérstöðu við Konunglega leiklistarskól-
ann, að þar hafa þeir mátt dvelja sem
gestir í eitt ár. Eftir þetta fyrsta ár geta
menn innritazt sem nemendur í skólann,
og .gcrði Lárus það.
Leikskóli Konunglega leikhússins er á-
litinn bezti leikskóli Norðurlanda, og þó
ÚTVARPSTÍÐINDI