Útvarpstíðindi - 03.02.1947, Page 4
28
ÚTVARPSTÍÐINDI
þessari samkeppni, og fyrirspurnun-
um rigndi yfir okkur. Loks fóru list-
arnir að berast, og komu í okkar
hendur alls 30 listar. Sjö sendu lista
með þúsund lögum og þar yfir. —
Hæstir voru tveir listar, með 1300
hvor, og á lægsta listanum voru 309
lög.
Vil ég nú nefna nöfn þeirra, sem
sendu 1000 iög og þar yfir:
1. Björg Björnsdóttir, Lóni, Keldu-
hverfi, Norður-Þingeyjarsýslu,
1.300.
2. Friðrik Hjartar, skólastjóri,
Akranesi, 1.300.
3. Ragnar Helgason, Valþjófsstað,
Norður-Þingeyjarsýslu, 1.145.
4. Estrid Falberg-Brekkan, Selja-
vegi 29, Rvík, 1.010.
5. Sólveig Stefánsdóttir, Vogum,
Suður-Þingeyjarsýslu, 1.000.
6. Sólveig Halblaub, Dalvík, Eyja-
fjarðarsýslu, 1.000.
7. Ingólfur Sigurgeirsson, Vallholti
Suður-Þingeyjarsýslu, 1.000.
Mörgum listunum fylgdu skemmti-
leg bréf, og sögðust margir kunna
fleiri lög en upp væru talin, og þykir
mér það mjög sennilegt. Sumir kviðu
prófinu, sumir bjuggust við, að ég
myndi heimsækja hvern einasta
keppanda og prófa hann heima. —
Margt elskulegt kom fram í bréfun-
um. — Emilía Friðriksdóttir, Hall-
dórsstöðum í Þingeyjarsýslu, skrif-
ar: ... ,,ég hef rifjað upp þau lög,
sem ég álít, að ég kunni. Þó að ég
geri ráð fyrir, að ég vinni ekki neitt
með þessu, hef ég gaman af að láta
yður sjá, hvað við alþýðukonurnar
getum á þessu sviði“.
Anna Benediktsdóttir, Köldukinn,
Þingeyjarsýslu, sem sendi á níunda
hundrað lög, skrifar:.......nú er ég
að hugsa um að senda þetta lagasafn
mitt, þó ég viti, að það hefur ekki
mikla þýðingu fyrir mig ... Ég er
nærri sjötíu og tveggja ára, og hef
aldrei átt heima þar, sem hljóðfæri
hefur verið, en notað mér að læra
þessi lög af hinum og þessum, sem
ég hef hitt á lífsleiðinni".
Jónas Tryggvason, Finnstungu,
Húnavatnssýslu, sem sendi mikinn
fjölda laga, skrifar: ... „Þegar þér
á sínum tíma efnduð til sönglaga-
samkeppninnar, varð það til þess, að
ég fór að skrifa upp þau lög, sem ég
kunni, án þess þó, að ég hefði í huga
að taka þátt í samkeppninni; fyrst
og fremst gerði ég þetta að gamni
mínu, og það er skemmst frá að
segja, að ég hef haft óblanclna á-
nægju af því . . . Lagakunnátta mín
er öll eftir eyranu, og þótt ég hafi
mikla ánægju af Ijóðum, þá hef ég
þó enn meira yndi af tónlistinni".
Þá vil ég leyfa mér að birta hér
kafla úr bréfi, sem Friðrik A. Frið-
riksson prófastur á Húsavík sendi
mér, og fylgdi sönglagalista frú
Helgu Þorgrímsdóttur frá Hlöðum.
— Vona ég, að prófasturinn og frú
Helga taki mér það ekki illa upp, en
margt er réttilega athugað í bréf-
kafla þessum.
... ,,Á barnsaldri var hún (frú
Helga) samtíða frænda sínum ein-
um, sem var tónglöggur og eitthvað
tónfróður, svo að hann gat spilað
lög fyrir á fiðlu, og var mjög ná-
kvæmui’ um meðferð þeirra. Hins-
vegar hefur frú Helga aldrei lært að
spila né þekkja nótur, né hefur hún
átt eða haft hljóðfæri á heimili sínu.
Frh. á bls. 32.