Útvarpstíðindi - 03.02.1947, Síða 11
ÚTVARPSTfÐINDI
35
Síða radioamatöra
Vegna þess, að beðið var eftir
staðfestingu á reglugerð um sendi-
leyfi alveg fram til þess að Útvarps-
tíðindin fóru í pressuna, en hún átti
framar öllu öðru að birtast hér, fell-
ur síðan að mestu niður að þessu
sinni, þar sem reglugerðin varð svo
síðbúin.
En óhætt mun að fullyrða, að hún
komi í næsta hefti Útvarpstíðinda.
Nú er aðeins beðið eftir staðfestingu
ráðherra og Póst- og símamálastjóra,
en að öðru leyti mun til fulls vera
gengið frá henni.
Hr. Börge Otzen, form. danskra
radioamatöra (R.D.R.), sendi félagi
íslenzkra radioamatöra símskeyti, og
biður þar um, að íslenzkir amatörar
hlusti á danska amatöra á 20 m., og
láti síðan félag þeirra vita skriflega
um árangurinn. Væntir félagið, að
ísl. amatörar verði vel við þessum
fyrstu tilmælum erlendis frá sem fé-
laginu berast.
Að endingu skorar stjórn Í.R.A. á
alla félaga að gerast áskrifendur Út-
varpstíðinda, vegna þess að þau eru
eina málgagn félagsins og eini vett-
vangurinn þar sem hægt er að birta
greinar eða tilkynningar um mál ísl.
radioamatöra.
Munið svo að senda ritstjóra síð-
unnar, Sigurði Halldórssyni, Víðimel
35, greinar og fyrirspurnir um á-
hugamálið. V Y 73.
ykkur“, sagði hann. — „Þetta ,er
Sandra, mamma, stúlkan, sem ég
ætla að giftast á morgun“.
F. P. þýddi.
KVENRÉTTINDAFÉLAGIÐ OG FLEIRA.
Bjarni ívarsson skrifar: „Hin sam-
fellda dagskrá „Kvenréttindafélags is-
lands“ 2G. janúar síðastl. var mér ó-
blandið ánægjuefni. Þar voru dregnar
fram í dagsljósið myhdaugðar staðreynd-
ir úr þróunarsögu kvenréttindahreyfing-
arinnar hér á landi. Pær sýndu átakan-
lega, hversu frelsisþrá kvenna hefur ver-
ið bæld og sett undir mæliker )>ess mold-
viðris, sem óhjákvæmilega nær yfirtök-
um, l)egar vanabundin vanaliyggja og
liugsjónasnautt mat á hinum sönnu mann
réttindum fær að þróast og valda mark-
vissum kirkingi og sálrænu drepi í
þjóðarsálinni. Parna voru leidd fram sem
vitni afreksmenn og þjóðskörungar, bæði
í stjórnmálum og skáldskap; — menn,
sem skildu hina skapandi framvindu
mannlífsþróunarinnar, er bendir fram
til nýs og betri heims. - Við að blusla
á þennan stórmerka útvarpsþátt, komu
mér í hug orð skáldspekingsins Stepli.
G.: -— „Allt mannlíf er veglyndi veg-
leysnafjöld, | með viðganginn langt út
úr sýn“. — Víst munu konurnar eiga þar
snaran þátt yfir vegleysur og torfærur
þjóðlífsins. Fórnarlundin er þeim í blóð
borin, og fagur er sá þáttur, sem þær
hafa lagt fram til viðhalds þjóðarsálinni,
í eldskírn hennar gegnuin aldirnar. Þær
hafa aldrei „alheinjt daglaun að kvöld-
um“. Viðgangur mannlífsins, „langt út
úr sýn“, hefur verið þeirra móðurfórn;
— vögguvéin háborg sálræns þroska. •—
Það er konunnar aöall. — Melkorka, Ás-
dís á Bjargi, Auður Gísla Súrssonar og
aðrar slíkar hetjur munu aldrei deyja, á
meðan „ástkæra ylhýra málið“ fær
óbrjálaö að senda „hrynjandi íslenzkrar
tungu“ inn í þjóðsál okkar. — Hafi svo
konurnar beztu þakkir fyrir þá útsýn,