Útvarpstíðindi - 03.02.1947, Side 13
ÚTVARPSTÍÐINDI
37
og er ])að vel farið. Stefán Guðmundsson,
Guðmundur Jónsson, María Markan, Lára
Magnúsdóttir og Elsa Sigfúss eru þeir
söngvarar, sem mér er kærast að heyra,
svo og sænskir og norskir söngvarar. ■—
Lestur fornrita er prýðilegur, einkum í
höndum dr. Einars ól. Sveinssönar. ■—
Upplesarar eru inargir svo góðir, að illt
er að gera upp á milli þeirra. Þó vil ég
nefna nokkra þá, sem vinsælastir eru
hér: Sigurður Skúlason, Helgi Hjörvar,
V. S. V., dr. Broddi Jóliannesson, Jón frá
Kaldaðarnesi, Lárus Pálsson, Brynjólfur
Jóhannesson og fleiri og fleiri. — Upp-
lestur kvæða finnst mér beztur hjá Lár-
usi Pálssyni og Guðbjörgu Vigfúsdóttur.
Árni óla og V. S. V. eru ágætir. Þeir
koma að jafnaði með eitthvað skemmti-
legt. Dr. Brodda kann ég liinar heztu
þakkir fyrir það, er hann hefur lesið
upp um íslenzka reiðhesta, þarfasta þjón-
inn, og vona ég, að hann haldi því áfram
— mér og mörgum öðrum til óblandinn-
ar ánægju. Sem betur fer unna ennþá
margir íslenzka reiðhestinum. — Kennsla
útvarpsins er bæði þörf og góð. Væri
ekki hægt að bæta tveimur námsgreinum
við: sænsku og norsku? — Væri ekki
líka hægt að láta í té leiðbeiningar um
málaralist og tréskurð? - Endurtekning
frétta er að mínum dómi mjög þreyt-
andi. Erindi frá útlöndum ætti að vera
nóg yfirlit yfir fréttir vikunnar. — —
Barnalímarnir eru mjög í afturför. 1 þá
vantar meira skemmtiefni, t. d. söng
barna og lög leikin á Havaigítar, liar-
monikku, inunnhörpu og flautu. •— Hér
læt ég þetta útrætt í þetta sinn, en vil
þó bæta við, að það er ekkert við það
að athuga, að afnotagjaldið hækki, ef
dagskráin batnar í samræmi við það“.
FER PÉTUR TIL SVIÞJÓÐAR?
Arnfríður Aradóttir skrifar: „Hvernig
er það með hann Þorstein Ö? Eigum við,
sem þráum svo mjög að heyra rödd hans
í útvarpinu, að verða fyrir þeim sáru
vonbrigðum, að hann hverfi alveg frá
þularstarfinu? Okkur hér finnst, að liann
ætti að minnsta kosti að koma til að
kveðja. — Ég vona bara, að Pétur fari
ekki að bregða sér til Svíþjóðar líka, ef
við skildum þá mega eiga það víst, að
missa hann líka. ■— Að endingu skora
ég á útvarpsráð, að taka þáttinn „Lög
og létt hjal“ upp að nýju. Og vil ég bera
fram þá ósk mína, að Pétur Pétursson
taki liann að sér, þar sem mér fannst
honum fara það bezt úr hendi. ■—■ Svo
bið ég útvarpið um meiri harmonikkulög
og gitarlög. Þarf Helgi Hjörvar endilega
að lesa þingfréttir á þeim tíma, sem
harmonikulögunum er ætlaður? ■— Svo
þökkum við Jakobi Jónssyni presti fyrir
erindið „Hetjudáð og drykkjuskapur“,
sem hann flutti nýlega".
LITIÐ VORLJÓÐ.
Harmar deyja, hlýtt er svið
heimsins draumabjarta.
Kærleiksþráin vermist við
vorsins geislalijarta. S. D.
RAFGEYMAVI NNUSTDFA VDR
GARÐASTRÆTI 2, PRIÐJU
HÆ-Ð.
ANNABT HLEÐSLU □ G
VIÐGERÐIR Á
VIÐTÆKJ AR AFG EYM U M.
Viðtækjaverzlun Ríkisins