Útvarpstíðindi - 03.02.1947, Qupperneq 17
ÚTVARPSTÍÐINDÍ
41
Hver hringdi dymbjöllunm
Smásaga
JANSEN stórkaupmaður sat í
stóra leðurklædda hægindastólnum
sínum og reykti vindling makinda-
lega. Hann var ákaflega ánægður
með sjálfum sér þessa stundina. —
Þetta hafði verið allra ánægjulegasti
dagur, dagur mikilla og góðra við-
skipta. Hann var nýbúinn að stofna
arðvænlegt fyrirtæki; verzlaði eink-
um með sápur og aðrar hreinlætis-
vörur. — Hann myndi áreiðanlega
græða góðan skilding á þessu fyrir-
tæki, það var hann sannfærður um.
Hann hafði vissulega ástæðu til
að vera ánægður með tímana, sem
hann lifði á, og gat því um leið ver-
ið ánægður með sjálfan sig. Sumir
spáðu að vísu illa fyrir honum, á-
litu, að fyrirtækið myndi ganga á
tréfótum, þeir um það. Þetta voru
aðallega menn, sem ekkert gátu sjálf-
ir, annað en spáð hrakspám fyrir
öðrum. Menn eins og t. d. Kramer,
sem eitt sinn hafði verið í félags-
skap við hann. Slíkur meðeigandi
skyldi verða sá fyrsti og síðasti í
hans fyrirtæki. Kramer hafði aldrei
orðið nema til tjóns í viðskiptunum;
allt hafði snúizt öfugt í höndum
hans, þegar hann ætlaði að gera góð
viðskipti.
Kramer var þeim ósköpum háður
að taka viðskiptin sem íþrótt, þar
sem allt væri undir því komið, að
sýna drenglyndi og heiðarlegan leik.
Vesalings Kramer! Það var ekki
hægt annað en vorkenna honum.
Hann þekkti ekki leiðir kaupsýslunn-
ar; hafði ekki nef fyrir viðskiptum
og myndi aldrei verða kaupsýslu-
maður.
Jansen stórkaupmaður lyngdi aft-
ur augunum. Hann var allt í einu
kominn á vald hugsananna um það,
er þeir Kramer höfðu staðið saman
í braskinu. Þeir höfðu samið um,
að þeir skyldu skipta að jöfnu, hvort
sem um ágóða eða tap væri að ræða
. .. Kramer hafði eyðilagt framtíð-
armöguleika fyrirtækisins . . . Það
urðu að vera útsjónarsamir menn og
duglegir, sem byggðu afkomu sína
á verzlun ... Að vísu hafði Jansen
komizt vandræðalítið frá þessu . ..
það vantaði nú líka bara, að hann
hefði .. .
Afkoma fyrirtækisins hefði ekki
mátt tæpara standa ... Það kumraði
í Jansen stórkaupmanni. — Hann
hefði ekki mátt slíta félagsskapnum
við Kramer öllu seinna ... Jú, hon-
um hafði tekizt að ná þessum 30
þúsund krónum, sem lágu í fyrir-
tækinu burt með sér. Það höfðu þó
reynzt nógir peningar til þess, að
stofna fyrir nýtt fyrirtæki.
Frámliald í néesta hlaði.