Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Blaðsíða 4
412
ÚTVARPSTIÐINDI
það, að hér sé um ágætis efni að
ræða, að strax með fyrsta þættinum
hafi Páli tekizt að ná eyrum hlust-
endanna og vekja áhuga þeirra fyr-
ir framhaldinu. Páll má vera viss
um það, að það verður mikið hlustað
á þætti hans í vetur.
Gísli J. Ásþtórsson blaðamaður
mun hafa verið ráðinn til að flytja
þáttinn „Heyrt og séð“ fjórum til
fimm sinnum til að byrja með — og
er ekki nema eðlilegt, að útvarpsráð;
vilji reyna menn í þáttunum. Út-
varpstíðindi brita nú fyrsta erindi
Gísla, en að dómi þeirra var erindið
ágætt og flutningur ákjósanlegur. —
Fleiri menn munu og koma fram í
þessum þætti, en vafasamt er, að það
sé þó heppilegra, heldur en að fela
einum og sama manni að sjá um
hann. Vel má vera, að Jónas Árna-
son komi aftur innan skamms, en af
sérstöku óheppilegu tilefni hafa stað-
ið deilur um Jónas undanfarið.
Ein tilraun hefur verið gerð til að
taka aftur upp þáttinn „Lög og létt
hjal“. Vægast sagt, tókst fyrsta til-
raunin ekki vel. Það er vel hægt að
fara með gamanmál, án þess að seil-
ast mjög langt niður fyrir almennt
velsæmi, en það var gert með þess-
um þætti. Hins vegar verður að játa,
að ekki má fordæma menn með nýja
þætti strax í upphafi. Þeir eru að
„prófa sig áfram“, eins og þeir segja
sjálfir, og vonir standa til að reynsl-
an kenni þeim margt. Fyrsti þáttur-
inn hjá Friðrik Sigurbjörnssyni mun
þó hafa valdið mörgum hlustendum
vonbrigðum. Hefur Útvarpstíðindum
borizt nokkuð af bréfum sem sýna,
að hlustendur eru reiðir yfir þættin-
um. Ef til vill þegja hinir ánægðu,
en það er venjan, að þeir þegi, en
oooooooooooooooooooo
RÍklSIJTVARPIÐ
Takmark Ríkisútvarpsins og ætlunar-
verk er að ná til allra þegna landsins
með hverskonar fræðslu og skemmtun,
sem því er unnt að veita
AÐ ALSKRIFSTOF A ÚTVARPSINS
annast um afgreiðslu, fjárhald, útborg-
anir, samningagerðir o. s. frv. — Út-
varpsstjóri er venjulega til viðtals kl.
2—4 síðd. Sími skrifstofunnar er 4993.
Sími útvarpsstjóra er 4990.
INNHEIMTU AFNOTAGJALDA
annast sérstök skrifstofa. — Sími 4998
ÚTVÁRPSRAÐIÐ
(Dagskrástjórnin) hefur yfirstjórn hinn-
ar menningarlegu starfsemi og velur
útvarpsefni. Skrifstofan er opin til við-
tals og afgreiðslu frá kl. 2—4 síðd.
Sími 4991.
FRÉTTASTOFAN
nnnast um fréttasöfnun innanlands og
frá útlöndum. — Fréttaritarar eru i
hverju héraði og kaupstað landsins. Sími
fréttastofu 4994. Sími fréttastjóra 4845.
AUGLÝSINGAR
Útvarpið flytur auglýsingar og tilkynn-
ingar til landsmanna með skjótum og
áhrifamiklum hætti. Þeir, sem reynt
hafa, telja útvarpsauglýsingar áhrifa-
mestar allra auglýsinga. Aualýsinga-
sími 1095.
VERKFRÆÐINGUR ÚTVAP.PSINS
hefur daglega umsjón með útvarpsstöð-
inni, magnarasal og viðgerðastofu. Sími
verkfræðings 4992.
VIÐGERÐARSTOFAN
annast um hverskonar viðgerðir og
breytingar viðtækja, veitir leiðbeining-
ar fræðslu um not og viðgerðir við-
tækja. Sími viðgerðarstofunnar 4995.
TAKMARKIÐ er:
Útvarpið inn á hvert heimili! Allir
landsmenn þurfa að eiga kost á því, að
hlusta á æðaslög þjóðlífsins; hjartaslög
heimsins. Rikisútvarpið.
€>0000000000000000000