Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Blaðsíða 5

Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Blaðsíða 5
ÚTVARPSTIÐINDI 413 Gunnlaugur Briem, verkfrœbingur Svar enn til Pétu rs Péturssonar ÞEGAR ÉG ritaði síðustu svar- grein mína við ádeilum Péturs Pét- urssonar útvarpsþuls, hafði ég ekki hugsað mér að svara frekari skrif- um hans varðandi stálþráðartækið, þar sem skoðanamunur okkar hafði verið skýrður, ef til vill með óþarf- lega mörgum orðum. Nú hefur Pét- hinir óánægðu rísi upp á afturlapp- irnra með gagnrýni sína. Þá er ótalin ein merkasta nýung- in, ef miðað er við óskir fólksins bæði hér í Reykjavík og úti um land, en það er útvarp danslaga frá Hótel Borg. Verður þetta að öllum líkind- um á fimmtudagskvöldum í vetur. Mun ungt fólk fagna þessari ný- breytni, en útvarp frá gildaskálum er algengt erlendis og ákaflega vin- sælt. Þær kvöldvökur, sem verið hafa síðan vetrardagskráin hófst, hafa þótt mjög góðar. Eins og sagt var í síðasta blaði, mun svipur þeirra verða hinn sami í vetur og undan- farna vetur, og er það trygging fyr- ir því, að enn sé langt frá því þurr- ausinn brunnurinn, sem fólk vill helzt drekka úr á kvöldvökum. — Frá leikritunum í vetur mun verða skýrt nánar í næsta blaði, því miður er ekki hægt að gera því efni skil fyrr. ur Pétursson birt nýja ádeilugrein á mig í 16. tölublaði Útvarpstíðinda og er nú víða gripið niður — fjar- vera frá magnarasal, kaup ónýtra tækja, fiðlukaup, gjaldeyri til teikn- inga útvarpshúss, reisukostnaður og margt fleira. Það er frekar óskemmtilegt að ræða við menn, sem virðast hafa þann tilgang einan að leita í öllum krókum að árásarefnum á samstarfs- menn sína, og ef þau finnast ekki nægileg, eru þeir sakaðir um óvið- komandi mál eða það er gripið til skáldskapargáfunnar. Þannig er það til dæmis uppspuni, að ég hafi keypt ónothæft enskt stál- vírstæki fyrir 10 þúsund krónur. Til- efni það, sem notað er í þessa sögu, er sennilega það, að í ferð sinni til Bretlands á síðasta vori var útvarps- stjóra boðið nýtt stálvírstæki fyrir útvarp og kom það hingað, en var strax sent aftur til verksmiðjunnar af því að tóngæði þess voru enn lak- ari en hinna amerísku tækja. Tækið kom hingað án minnar tilstilli eða vitundar, og er þetta ekki sagt af því, að ég telji neitt við það að at- huga, að útvarpsstjóri ráðstafaði tækinu hingað í ferð sinni í stað þess að bíða eftir samráði við mig. Þulurinn ræðir um einhverjar ó- nafngreindar smábreytingar, sem ég hefði synjað um af því að þær væru

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.