Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Blaðsíða 12

Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Blaðsíða 12
420 ÚTV\RPSTTDINDI dögg fyrir sólu, en þó aðeins til að birtist við coca cola flöskurnar sín- ar um leið og dansinn hefst á ný ... Það er hægt að setja úrið sitt eftir þeim, telpunum ... Og ekki vantar sjoppurnar svoköll- uðu. Sumar eru andstyggilega sóða- legar og óvistlegar, aðrar bera þess öll merki, að eigendur þeirra eru bæði smekklegir og heiðarlegir veit- ingamenn ... Og svo eru það nokkr- ar, sem virðast draga að sér drykkju- rútana með einhverju óskiljanlegu seiðmagni. Það er á þessum stöðum, sem tíkallinn er sleginn í flöskuna og tappinn úr henni. Það er í kringum þessa staði, sem lögreglan finnur tryggustu gistivini sína. Og það eru meðal annars þeir, sem halda sig í nánd við þessa staði, sem farið hafa höndum um smygluðu nylonsokkana, sem fleiri en ein blómarósin er í á Borginni í kvöld ... Því Reykjavík er hafnarborg, og hún er orðin stór- borg ... og þá fylgir það af sjálfu sér, að allur varningur fari ekki í gegnum hendur tollþjóna Mér er jafnvel sagt, að til skamms tíma hafi á vissum stöðum verið hægt að kaupa smygluð bandarísk karlmanns- föt í öllum regnbogans litum ... Og þa^ engu máli, hvort þú varst lítill eða stór, feitur eða grannur — á þessum vissu stöðum og hjá viss- um mönnum var hægt að fá allar stærðir og gerðir. Þegar mér datt fyrst í hug að tala um Reykjavík, og það sem heyrðist og sæist í Reykjavík sem stórborg, sneri ég mér til tólf ára pilts og nokkurra uppkominna karla og kvenna og bað fólk þetta að hripa niður í örfáum orðum það, sem það teldi meðal meginkosta höfuðborgar- innar, og svo auðvitað aðal ókostina. Sá tólf ára — hann er kallaður Nonni og býr á Seltjarnarnesinu og sendist auk þess sem hann gengur í skóla — sá tólf ára skrifaði með stórum barnalegum en ákveðnum stöfum: Bezt eru bíóin, strætisvagn- arnir og skólarnir — þegar maður fær góða einkunn ... Verstir eru fullu mennirnir ... Sá elzti þeirra, sem ég spurði, skrifaði meðal annars eftirfarandi: Þess gerist raunverulega ekki þörf, að borgari hér í bæ gefi um það yf- irlýsingu, að honum þyki vænt um bæinn sinn — svo sjálfsagt er það. En þó finnst mér mörgu áfátt og miður fara — líklega mest fyrir hugsunarleysi. Mér sárnar oftlgea — sérstaklega þegar ég kem erlendis' frá — að ég skuli hvergi njóta þeirr- ar sjálfsögðu ánægju að sjá hér gos- brunna né neinskonar Ijósadýrð ... eða myndastyttur né önnur listaverk á almannafæri, eða á þeim stöðum, sem menn ganga um sér til skemmt- unar ... Útlendingar, sem hingað koma, mættu hugsa, að við værum svo vita vatnslausir og rafmagns- lausir, að það væri orsökin til þess- arar vöntunar ... Þetta segir hann. Og svo bætir þessi reykvíski borgari við, að hann álíti að styrkþiggjandi listamenn Reykjavíkur eigi að gera meira til að skreyta bæinn sinn ... og hann vill láta koma upp Bulevard-lýsingu við Tjörnina og setja upp ljóskastara umhverfis Austurvöll. Athyglisverðast við þessa skoðana- könnun — ef þá hægt er að kalla þetta skoðanakönnun — þótti mér,

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.