Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Blaðsíða 11
ÚTVARPSTÍÐINDI
419
Kex og sápu og skófatnað framleiðir
hún ... og svo auðvitað leikföng
handa börnunum ... Og vinnufata-
gerðirnar reykvísku munu nú þvínær
hafa útrýmt öllum erlendum keppi-
nautum, auk þess sem borgin leggur
til sinn skerf af þeim tækjum, sem
landsmenn þarfnast helzt til að
stunda aðalatvinnugreinar sínar ...
Og svo mætti lengi telja.
Ég fékk núna í vikunni að skoða
mig um í einni af verksmiðjum þeim
sem nátengd er fiskveiðunum ...
Þetta er Hampiðjan í Stakkholti
fjögur .. . og í verksmiðjunni sjálfri
starfa 40 til 50 manns, auk þess sem
eitt til tvö hundruð vinna að stað-
aldri á vegum fyrirtækisins við neta-
hnýtingu heima hjá sér.
Þarna eru tvær vaktir, og það er
unnið sextán tíma á sólarhring. Það
er óskaplegur níður í aðalsalnum,
þegar komið er inn í hann, enda eru
þarna stórar véíar og afkastamiklar.
... Þarna er ungt fólk og gamalt
fólk, og margt af starfsfólkinu er af
„veikara kyninu“ svokallaða. Stúlk-
urnar eru í vinnufötum og vinna
hratt, og það var ekki laust við, að
mér sýndist ein tvær þeirra hafa
svarta bletti á nefinu ... En þær eru
líka glaðlegar og laglegar flestar
hverjar. Þær minna mann á konurn-
ar hjá styrjaldarþjóðunum, er unnu
í vopnaverksmiðjunum á óriðarár-
unum . .. nema hvað vopnunum, sem
þær íslenzku framleiða, er beint gegn
þorskinum okkar blessuðum, sem svo
fer til þjóðanna, sem eyddu kröftum
sona sinna á vígvöllunum ...
En Reykjavík hefur fleira upp á
að bjóða en botnvörpunet og skó-
fatnað og gosdrykki. — Hún selur
skemmtanir — stærri og fleiri og
margþættari skemmtanir en nokkur
staður annar á landinu. Bíóauglýs-
ingar fimm glæsilegra kvikmynda-
húsa hrópa daglega til borgarbúa.
Hundruð þekktra kvikmyndaleikara
skemmta þeim árlega. Miljónatugum
er varið til að gera þeim kvikmynd-
irnar sem boðlegastar. Og á þessari
stundu — klukkan um hálf tíu — sit-
ur hátt á þriðja þúsund Reykvíkinga
í bíóum borgarinnar. ... . - -
Annars voru það aðallega veit-
ingahúsin, sem mig langaði til að
minnast á í sambandi við skemm't-
anasölu höfuðborgarinnar. Sannleik-
urinn er sá, að Reykjavík hefur upp
á jafn miklar andstæður að bjóða
í þeim efnum og hvér önnur meðál--
stór hafnarborg út um heim.
Það er til dæmis Hótel Borg ... Ég
veit það af eigin reynd, að hún þolir
að ýmsu leyti fyllilega samanburð
við hin fullkomnustu veitingahús er-
lendis. Salirnir eru smekklegir og
maturinn góður og verði hans mjög í
hóf stillt. En reykvísku borgararnir
hafa líka sjálfir lagt til þau .atriðin,
sem stundum gei’a þetta stærsta veit-
inga- og gistihús þjóðarinnar að
stórfurðulegum stað í augum utanr
bæjarmannsins og útlendingsins. Það
er til dæmis þessi mikl.i f jöldi. pilta
og stúlkna um og undir tvitugt. .. . .
Og/fólkið, sem kemur þeysandi inn
í veitingasalina í yfirhöfnum sínum,
skýzt borð frá borði og hverfur svo
á jafn dularfullán hátt og það kom.
... Og litlu stúlkurnar með tyggi-
gúmmíið og á háu hælunum, sem
biðja um coca cola og dansa svo og
dansa og dansa ... Og svo þegar
hléið kemur, hverfa þær eins og