Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Blaðsíða 21

Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Blaðsíða 21
ÚTVARPSTÍÐINDI 429 að finna á tígrisdýrinu. Auðsjáan- lega hafði öfugt dýr orðið fyrir skot- inu, en rándýrið á hinn bóginn hrokkið upp af af hjartaslagi, bæði vegna hins hvella skots og ellihrörn- unar. Frú Packletide varð, eins og geta má nærri, sár, þegar þetta kom á daginn, en þegar öllu var á botn- inn hvolft, átti hún þó tígrisdýrs- hræið, og þorpsbúar, gráðugir í sína þúsund rupees, féllust allshugar fegnir á að láta svo heita, að hún hefði skotið villidýrið. Og ungfrú Mebbin var launuð lagskona. Frú Packletide bauð því ljósmyndavél- unum birginn létt í lund og hin Ijós- myndaða frægð hennar náði allt frá SmámyndavikublaSi Texasfylkis yf- ir á síður hins myndum skreytta mánudagsaukablaðs Novoe Vremya. Um Loonu Bimberton er það að segja, að hún aftók að líta í mynda- blaðið vikum saman, og þakkarbréfið vegna brjóstnælunnar úr tígrisdýrs- klónum, sem hún fékk að gjöf, var fyrirmynd, hvað snerti niðurbældar tilfinningar. Hádegisverðarboðinu hafnaði hún. Það kemur sú stund, að niðurbældar tilfinningar geta reynzt hættulegar. Frá Curzon-stræti ferðaðist tígris- dýrsfeldurinn út á herragarðinn og var gaumgæfilega skoðaður og dáður af öllum þar um slóðir, og það sýnd- ist vel fara og sæma, er frú Packle- tide birtist í gervi veiðigyðjunnar Díönu á grímudansleik héraðsins. Samt neitaði hún að fallast á hina freistandi uppástungu Clovis um að halda steinaldardansleik, þar sem allir viðstaddir skyldu klæðast feld- um dýra, sem þeir hefðu nýlega lagt að velli „Ég yrði að vísu heldur en ekki hvítvoðingslegur," játaði Clovis, „með einn eða tvo kanínu- skinnssnepla um kroppinn. En eigi að síður,“ bætti hann við, um leið og hann renndi augunum illgirnis- lega yfir vaxtarlag Díönu, „þá hefi ég vöxt á við hvern balettdansar- ann.“ „En hve öllum yrði nú skemmt, ef þeir fengju að vita, hvernig í öllu liggur,“ sagði Louisa Mebbin nokkr- um dögum eftir dansleikinn. „Hvað eigið þér við?“ spurði frú Packletide snöggt. „Hvernig þér skutuð geitina og hrædduð líftóruna úr tígrisdýrinu", sagði ungfrú Mebbin og hló sínum ógeðfellda ánægjuhlátri. „Enginn mundi trúa því,“ sagði frú Packletide, og andlit hennar skipti litum, eins og þegar blaðað er hratt í gegnum marglita mynda- bók. „Loona Bimberton mundi gera það,“ sagði ungfrú Mebbin. Andlit frú Packletide tók á sig fráhrind- andi grænhvítan blæ. „Þér færuð aldrei að ljóstra upp um mig?“ sagði hún í spurnarrómi. Ég rakst á sumarbústað nálægt Dorking, sem mér leikur hugur á að kaupa,“ sagði ungfrú Mebbin, eins og það væri málinu óviðkom- andi. „Sex hundruð og áttatíu pund, eignarjörð. Kjarakaup, en gallinn er sá, að ég á ekki fyrir því.“ —o— Fagri sumarbústaðurinn hennar Louise Mebbin, sem hún skírði „Les Fauves“ (Villidýrin), og sumarglaði garðurinn hennar með tígrisdýrs- Framh. á bls. 432.

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.