Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Blaðsíða 14

Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Blaðsíða 14
422 ÚTV 4RPSTÍÐINDI Vinsæl danslög í útvaxpinu Danslag kvöldsins hefur nú fallið niður um langan tima, og staf- ar það af því, að danshljómsveit Bjarna Böðvarssonar hefur ekki leikið í útvarpið að undanförnu. Fyrsta vetrardag kom hljómsveitin fram í útvarpinu á'ný, og voru einsöngvarar með hljómsveitinni þá þeir Haukur Morthens og Alfred Clausen, og fara hér á eftir Ijóðin, sem þeir sungu. — Þeir munu einnig koma fram í þættinum „Lög og létt hjal“ við og við í vetur. Ég ann þér (Prisoner of love). Ég aleinn sit við auðan arinn, mín ástarþrá og sæla er farin, en minninganna mikli skarinn mig oft um nóttu sækir heim. Því slcömm varð okkar ástarsaga, er oft ég hugsa um liðna daga og raula, tóna týndra laga, tóna frá dögum þeim. Og allt sem ég þrái og einlægast dái, það allt hjá þér býr, og hugur minn þjáður til þín, eins og áður, um óraveg flýr. Og þótt að annar hug þinn eigi og unað vara þinna teygi við hné þér krýp ég samt og segi: Ég ann, ég ann þér enn. Hlusta á mig Hlusta á mig. Heyr, nú syng ég um þig. Hlusta á Ijóð mitt, Ijúfa mey, þú drottning drauma minna, dýrðarljósin augna þinna. Elska mig, yndislega meyja, því án þín ég aleinn dey. Hlusta þú á mig, heyr, ég syng fyrir þig. Hér er Ijóð mitt hjartans mey. Máninn skín í skálagarði Máninn slcín í slcálagarði, skuggar mjúkir vefja glitrandi lund, sælt er að leiðast í laufsala göngum um lágnættis sutnd ... Máninn skín í skálagarði, skarta mildir stjörnuskarar um stillta nótt, þá er hvíslað hljótt, húmið vefur drótt.

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.