Útvarpstíðindi - 21.03.1949, Síða 4

Útvarpstíðindi - 21.03.1949, Síða 4
76 ÚtvarpttíOindi HELGI HJÖRVAR: Störf útvarpsráðs Slðari hluti útvarpserindis. Framh. Útvarpsráö byrjaði starf sitt við mikla óvissu og mikla örbirgð. Útvarpsnotendur voru taldir um 400, afnotagjald varð 30 kr. Það voru 12 þúsund kr. í árstekjur. Fyrsta kostnaðaráætlun, bókuð í gerðabók út- varpsráð, er uppkast, gert af formanni í okt. 1930, 60 þús. kr. á ári fyrir öllu dag- skrárefni, og mætti að vísu fimmfalda nú að verðgildi. Smíði stöðvarinnar drógst á langinn. Rætt hafði verið um það, að geta útvarpað Alþingishátíðinni á Þingvöllum 1930, en þó var horfið frá að reyna það. Loks gat útvarp hafist 20. desember 1930. Fyrstu sumurin var dagskráin nær ein- göngu fréttir og tónleikar, og í mörg ár var ætlað til allrar dagskrár um 60 þús. kr. á ári. Þá voru 5 krónur til eða frá mikils- verður hlutur fyrir starfsemi útvarpsráðs. Útvarpsráð leitaðist við að koma á ís- lenzku útvarpsmáli. í gerðabók þess 18. sept. 1930 er t. d. bókað orðið „þulur,“ og þannig sköpuðust orðin jafnóðum og til þurfti að taka, sjónvarp, þegar þar að kom, o. s. frv. Alexander Jóhannesson var lífið og sálin í hinum fyrstu áformum um sam- bandið við umheiminn. Hann kenndi út- varpinu það, að hægt var að taka upp frétt- ir frá útlöndum, og á þann einfalda hátt að ganga sjálfur í verkið. Hann tók upp fréttir frá Þýzkalandi og útvarpaði jafn- óðum af eldlegum ákafa, frá þeim atburð- um sem allur jarðheimur svalg í þann tíma. Þá gerðust fréttirnar þar. Fyrstu vikuna sem útvarpið starfaði var gerð ályktun um það í útvarpsráði, að I janúarlok 1931 skyldu fara fram frjálsar umræður um landsmál 1 útvarpið. En all- miklir vafningar urðu um þessar fyrstu stjórnmálaumræður; flokkarnir voru hik- andi, og kannski ekki lausir við klókindi. Þann 9. febr. 1931 er samþykkt á fundi út- varpsráðs að birta skuli tiltekna ályktun um stjórnmál frá landsmálafélaginu „Fram“ í Hafnarfirði, en eitthvað stóð í stappi um tillöguna, og þegar á eftir þá ákvörðun útvarpsráðs, að framvegis verði ekki birtar í útvarpinu „pólitískar rök- semdafærslur fyrir fundarályktunum, heldur niðurstöður einar og ályktanir, sem tillaga felur í sér.“ — Þessi regla gildir enn. Nú var útvarpsráð að komast út í heim- inn. Á næsta fundi er samþykkt áskorun um það, að „vegna svívirðilegra ummæla" í tilteknu blaði um Sigurð Einarsson — en hann var þá orðinn fréttamaður — skuli höfða mál á blaðið, „með því að síðari hluti ummælanna er meiðandi, einnig fyrir starf- semi útvarpsins.“ Þessi viðkvæmni vandist af útvarpsráði með aldrinum. Um vorið 1931, 6. maí, var haldinn fund- ur útvarpsráðs heima hjá Páli ísólfssyni (hann mun hafa verið veikur, en annars var útvarpsráð á hrakningum með fundi sína). Á þeim fundi var samþ. með 2:1 atkv. að veita Kommúnistaflokki íslands rúm fyrir eina ræðu í stj órnmálaumræðum sem þá fóru fram í útvarpinu. Þetta sama kvöld kom Brynjólfur Bjarnason upp í út- varp og flutti ræðu sína, en þvínæst dró hann sig úr hindarhljóði og lét hina eigast við. Síðar varð hann yfirmaður útvarpsins sem ráðherra, en fráleitt hefur þessi ræða gert til né frá um það. Verksvið útvarpsráðs var þannig afmark- að í lögunum sem giltu um hið fyrsta út- varpsráð: „Útvarpsráð hefur yfirstjórn hinnar menningarlegu starfsemi útvarpsins og ræður útvarpsefni, í samráði við útvarps- stjóra. Þess skal stranglega gætt, að við

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.