Útvarpstíðindi - 21.03.1949, Side 5
Útvarpstíðindi
77
útvarpið ríki skoðanafrelsi og að gætt verði
fyllstu óhlutdrægni gagnvart öllum flokk-
um og stefnum í almennum málum.“
Þessum ákvæðum var breytt að orðalagi
í þeim lögum sem nú gilda, og segir þar að
„útvarpsráð tekur ákvarðanir um það,
hversu dagskrá skuli hagað í höfuðefnum
og leggur fullnaðarsamþykki á dagskrá.
Það setur reglur um fréttaflutning út-
varpsins og aörar reglur, er þurfa þykir til
gæslu þess, að við útvarpið ríki skoðana-
frelsi og fyllsta óhlutdrægni“ o. s. frv.
Það er einkennilegt, að í svo veigamiklum
lögum sem útvarpslögin eru, stendur hvergi
skýlaust hvar æðsta vald yfir þessum mál-
efnum er eða fullnaðarábyrgð. En svo mun
vera litið á, að það sé eftir eðli málsins hjá
útvarpsráði, þrátt fyrir hið óhreina orða-
lag í lögunum.
Á þúsund fundum útvarpsráðs hafa verið
tekin fyrir fleiri mál en tölum verði talin
að sinni, mörg harla smá, en stundum líka
stórmál, og ýmsar ákvarðanir gerðar sem
litla athygli vöktu um leið og gerðar voru,
en fólu þó í sér markverða hluti til fram-
búðar, og stundum til hins betra. Útvarps-
ráð hefur oft staðið í vanda frammi fyrir
einskærum hégóma og dægurþrasi — sem
samtímamönnum finnst jafnan vera hin
stærstu mál. En útvarpsráð hefur líka
stundum staðið frammi fyrir raunveruleg-
um vanda, þar sem mikið reið á úrskurði
þess. Tíminn einn gerir hér þann greinar-
mun sem nokkru skifti.
Ekki er þess að vænta, að fundir slíkir
sem útvarpsráðs séu jafnan mjög skemmti-
legir og ekki er heldur siður að bókfæra
það sem skemmtilegt kynni að vera, held-
ur fellur það utan við hinn beina og virðu-
lega veg sem ganga skal. Þó er margt það
geymt í hinni háalvarlegu gerðabók út-
varpsráðs sem saklaust gaman væri að rifja
upp, og ætlaði ég að vísu að leyfa mér það
nú. En tíminn hefur farið i alvöruna.
r----------------------------------------\
RÍKISÚTVARPIÐ
Takmark Ríkisútvarpsins og ætlunar-
verk er að ná til allra þegna landsins
með hverskonar fræðslu og skemmtun,
sem því er unnt að veita.
Aðalskrifstofa útvarpsins
annast um afgreiðslu, fjárhald, útborg-
anir, samningagerðir o. s. frv. — Út-
varpsstjóri er venjulega til viðtals kl.
2—4 síðd. Sími skrifstofunnar er 4993.
Sími útvarpsstjóra 4990.
Innheimtu afnotagjalda
annast sérstök skrifstofa. — Sími 4998.
Útvarpsráðið
(Dagskrástjórnin) hefur yfirstjórn
hinnar menningarlegu starfsemi og vel-
ur útvarpseíni. Skrifstofan er opin til
viðtals og afgreiðslu frá kl. 2-—4 síðd.
Sími 4991.
Fréttastofan
annast um fréttasöfnun innanlands og
frá útlöndum. Fréttaritarar eru í hverju
héraði og kaupstað landsins. Sími frétta-
stofu 4994. Sími fréttastjóra 4845.
Auglýsingar.
Utvarpið flytur auglýsingar og tilkynn-
ingar til landsmanna með skjótum og
áhrifamiklum hætti. Þeir, sem reynt
hafa, telja útvarpsauglýsingar áhrifa-
mestar allra auglýsinga. Auglýsingar-
sími 1095.
Verkfræðingur útvarpsins
hefur daglega umsjón með útvarps-
stöðinni, magnarasal og viðgerðarstofu.
Sími verkfræðings 4992.
Viðgerðarstofan
annast um hverskonar viðgerðir og
breytingar viðtækja, veitir lelðbeiningar
og fræðslu um not og viðgerðir viötækja.
Sími viðgerðarstofunnar 4995.
Takmarkið er:
Útvarpið inn á hvert heimili! Allir
landsmenn þurfa að eiga kost á því, að
hlusta á æðaslög þjóðlíísins; hjartaslög
heimsins.
Ríldsútvarpið.
v________________________________________,