Útvarpstíðindi - 21.03.1949, Side 13
Ú tvarpatíðindi
85
á leið eldkvikunnar upp úr jarðskorpunni,
en þar hef ég því miður aldrei komið, né
neinn maður annarr. Allar ályktanir um
þessi efni verðum við því að draga af
reynslu skilningarvita okkar hér uppi á
yfirborði jarðar og þeirri þekkingu í jarð-
fræði, eðlisfræði og efnafræði, sem vísinda-
menn, bæði fyrr og síðar, hafa aflað okkur
til handa — að vísu einnig hér á yfirborði
jarðar.
f síðari erindunum mun ég segja frá
nokkrum lærdómsríkum eldgosum, en fara
mjög fljótt yfir sögu, og ennfremur leitast
við að skýra myndun ýmissa gerða af eld-
fjöllum.
Bjami Vilhjálmsson.
Þátturinn „spurningar og svör um ís-
lenzkt mál“ varð mjög vinsæll í meðferð
Björns Sigfússonar, og hann lenti einnig í
góðum höndum þegar Bjarni Vilhjálmsson
tók við honum. Vafasamt er, hvort nokkur
annar fastur liður dagskrárinnar sé vin-
sælli, enda fer þar saman gagnleg og
skemmtileg fræðsla um islenzkt mál.
21.15 Dagskrá Kvenfélagasambands Islands.
Erindi.
21.40 Spurningar og svör um íslenzkt mál
(Bjarni Vilhjálmsson).
22.15 Symfóniskir tónleikar (plötur): Sym-
fónía nr. 3 eftir Arnold Bax.
Föstudajjur 8. apríl:
20.30 Utvarpssagan: „Opinberun" eftir Rom-
anoff, síðari lestur (Helgi Hjörvar).
21.00 Strokkvartett útvarpsins: Kvartett í
Es-dúr eftir Schubert.
21.15 Frá útlöndum (Benedikt Gröndal
blaöamaður).
21.30 íslenzk tónlist: Lög eftir Bjarna Þor-
steinsson (plötur).
21.45 Fjárhagsþáttur.
22.15 Útvarp frá Sjálfstæðishúsinu: Hljóm-
sveit Aage Lorange leikur danslög.
Laugardagur 9. apríl:
20.30 Útvarpstríóið: Einleikur og tríó.
20.45 Leikrit.
22.15 Danslög (plötur).
Sunnudaginn 3. apríl flytur séra Jakob
Jónsson messu í Hallgrímskirkju. Sálmar
fyrir prédikun: 578, 227 og 220, eftir pré-
dikun: 226 og 232. Ræðuefni: Guðssonur-
inn í heimi mannanna.
Orðsending til kaupendanna
Útvarpstíðindi beinir þeim tilmæl-
um vinsamlegast til kaupenda sinna,
að þeir sendi borgun fyrir yfirstand-
andi árgang við fyrsta tækifæri til
afgreiðslunnar i Bókabúðina Lauga-
nes, pósthólf 464, Reykjavík. Það
myndi spara mikla fyrirhöfn við inn-
heimtuna og blaðinu um leið gerður
mikill greiði.
Nýir áskrifendur geta, ef þeir óska
þess, fengið síðasta árgang í kaup-
bæti meðan upplag endist.
\