Útvarpstíðindi - 21.03.1949, Blaðsíða 15
Ú tvarpstíðindi
87
styttur, því sem nemur lestri Passíusálmanna
og sama gildir vafalaust um aðra sæmilega
liði hinnar mjög svo lélegu dagskrár. Þegar
Óskalagatíminn hófst var honum ætlaður því
sem næst einn klukkutími og hefur sá háttur
verið hafður á, allt þar til lestur Passíusálma
hófst. Sizt er ég á móti Passíusálmunum, en
þetta smásmugulega sparnaðarsjónarmið er
ofvaxið mínum skilningi. Því má ekki lengja
dagskrána því sem nemur tímanum, sem fer í
Passíusálmalestur. Munar Ríkisútvarpið svona
óskaplega mikið um 15 mínútur? Ég held, að
margir hlustendur taki undir þá ósk mína, að
Ríkisútvarpið sjái sig nú um hönd og fari að
óskum hlustenda, ekki einungis um þennan
eina þátt, heldur dagskrána almennt. Hlust-
endum finnst hvort eð er heldur lítið á dag-
skránni að græða fyrir þær 100 krónur, sem
þeir greiða í afnotagjöld á ári. Hefi ég heyrt
margar raddir um það, að útvarpið gæti sér
að skaðlausu haft dagskrána til miðnættis alla
daga og finnst mér þetta vel athugandi fyrir
ráðamenn þess, og væri óskandi, að þeir
treystu sér til að taka óskir hlustenda til
greina einstaka sinnum, en létu ekki ætíð ráða
sín eigin þröngu sjónarmið. F. T.
Takmarkiö er
Vihtæki
á hverju heimili.
V iðtækjaverzlun
Ríkisins
Gar^astræti 2 . Reykjavík
V._________________________J
Höfum ávallt fyrirliggjandi
NEFTÚBAK
í 250 gr. glerkrukkum, — ditto í 50
gr. blikkdósum.
TÓBAKSEINKASALA RÍKISINS