Bankablaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 4

Bankablaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 4
Samningsréttarmálin í síðasta Bankablaði skrifaði undirritaður nokkuð um það réttleysi sem bankamenn byggju við í samningamálum sínum. Á þessum málum hafa nú orðið miklar breytingar. í fylgiskjali III með samkomulagi því sem gert var við bankana s.l. sumar var yfirlýsing frá bönkunum þar sem m.a. eftirfarandi var tekið fram: „Bankaráð og bankastjórnir ríkisbankanna munu beita sér fyrir því, að í væntanlega nýja löggjöf um viðskiptabankana verði sett lagagrein, sem kveði á um eftirfarandi meg- inatriði. 1. Að laun og önnur kjör starfsmanna ríkis- bankanna verði ákveðin með kjarasamn- ingum á milli bankaráða og bankastjórna annars vegar og heildarsamtaka banka- manna hins vegar. 2. Að fyrirkomulag þessara kjarasamninga fari eftir nánari samkomulagi aðila, sem lokið verði áður en frumvarp að banka- löggjöf sé lagt fram. 3. Að jafnframt sé kveðið svo á, að ákvæði laga nr. 33/1915, um verkfall opinberra starfsmanna, skuli ekki gilda um starfs- menn ríkisbankanna.“ Annar liður fylgiskjals III fjallaði um meg- inatriði væntanlegs samkomulags um fyrir- komulag væntanlegra kjarasamninga. Gert var ráð fyrir að slíkt samkomulag yrði tilbúið fyrir lok septembermánaðar. Af ýmsum ástæðum var samkomulagið ekki tilbúið þá þrátt fyrir mikinn fjölda funda sem haldnir hafa verið um málið ,en í október náðist að lokum endanlegt samkomulag í samninganefndinni um hljóðan kjarasamningaákvæða væntanlegra bankalaga og einnig um „Samkomulag um kjarasamn- inga.“ Af hálfu bankanna hafa verið í nefndinni þeir Jónas H. Haralz og Guðmundur Hjartar- son, bankastjórar en af hálfu SÍB, undirritaður, Svavar Ármannsson, Þorvaldur G. Einarsson, Sveinbjörn Hafliðason og Skúli Sigurgrímsson. Við því er varla að búast að frumvarpið verði lagt fyrir haustþing en fljótlega eftir að þing kemur saman að nýju eftir jólaleyfi má búast við að það verði gert. Verður þetta mál ekki tíundað frekar hér að þessu sinni heldur látið bíða til næsta blaðs. SRS. 2 BANKABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.