Bankablaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 15

Bankablaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 15
sögn af námskeiðinu án þess að minnast þeirra manna sérstaklega sem undirbjuggu og sáu um stjórn námskeiðsins, einkum framkv.stjóra sam- bandsins, Geirs H. Gunnarssonar og formanns sambandsins Sólons R. Sigurðssonar og hans meðstjórnarmanna sem með einstakri lagni og útsjónarsemi tókst að skipuleggja námskeiðið á mjög hagkvæman hátt og virkja hvern þátt- takanda til starfs þegar á námsekiðið kom. Vil ég fyrir hönd námskeiðsfulltrúa þakka þessum mönnum fyrir gagnlegt vornámskeið um leið og ég undirstrika nytsemi námskeiðs sem þessa fyrir starfsemi íslenskra bankamanna og vona að það verði framvegis sem hingað til fastur liður í starfsemi sambandsins. Þá er rétt að minnast á þátttöku hinna norrænu starfsbræðra okkar sem veittu mjög gagnlegar upplýsingar og aðstoðuðu við störf námskeiðsins eftir því sem aðstæður leyfðu. Benedikt E. Guðbjartsson. Frá skrifstofu SÍB Nýir starfskraftar á skrifstofunni. Gunnar Eydal, lögfræðingur hóf störf sem skrifstofustjóri SÍB hinn 1. des. s.l. Gunnar hefur starfað hjá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja í á fimmta ár, þannig að hann er öll- um hnútum kunnugur í starfsemi launþegasam- taka sem okkar. Gunnars bíða margvísleg verk- efni og væntir stjórnin mikils af starfi Gunnars. Gunnar Eydal er fæddur 1. nóv. 1943 á Akureyri. Hann varð stúdent frá Menntaskól- anum á Akureyri 1964. Lauk prófi frá laga- deild Háskóla Islands árið 1971 og stundaði framhaldsnám í vinnurétti við Kaupmanna- hafnarháskóla í eitt ár (1971—1972). Gunnar hefur réttindi sem héraðsdómslögmaður. Að námi loknu starfaði Gunnar um stutt skeið hjá Bæjarfógetanum á Akureyri en síðan, eins og áður sagði, hjá BSRB. Gunnar er kvæntur Ásgerði Ragnarsdóttur kennara og eiga þau þrjú börn. Björg Árnadóttir. Björg Árnadóttir hóf störf á skrifstofu SÍB hinn 18. okt. s.l. Björg er fædd 26. febrúar 1949 á Bíldudal. Hún lauk námi frá Kvennaskólanum í Reykja- vík 1967 og hóf þá störf hjá Seðlabanka ís- lands, þar sem hún starfaði í 3 ár. Þegar Nor- ræni Iðnþróunarsjóðurinn tók til starfa árið 1970 réðst Björg þangað og starfaði þar næstu 3 árin. Síðan þá hefur Björg starfað heima við að gæta bús og barna. Björg er gift Kristjáni Ólafssyni, vélstjóra og eiga þau tvö börn. BANKABLAÐIÐ 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.