Bankablaðið - 01.12.1976, Page 32
veitt á s.l. ári. Bankinn festi kaup á hluta fast-
eignarinnar Sveinatungu við Vífilsstaðaveg, en
þar eru m.a. skrifstofur bæjarstjórnar til húsa.
Við opnun útibúsins ávarpaði Stefán Val-
geirsson, formaður bankaráðs Búnaðarbankans
nokkra gesti og færði hann Lista- og menning-
arsjóði Garðabæjar að gjöf eina milljón króna
frá bankanum í tilefni opnunar útibúsins, en
sjóður þessi var stofnaður þann 6. janúar s.l.
á fyrsta fundi bæjarstjórnar hins nýja kaup-
staðar. í máli sínu lýsti formaður bankaráðs
í stórum dráttum, starfsemi og þróunarferli
Búnaðarbankans og árnaði starfsfólki og við-
skiptamönnum útibúsins heilla. Ólafur G. Ein-
arsson, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar þakk-
aði gjöfina og fagnaði tilkomu útibúsins, sem
hann kvaðst sannfærður um, að verða mundi
til styrktar og eflingar athafnalífi einstaklinga
og fyrirtækja í kaupstaðnum. Ávörp fluttu þeir
Halldór E. Sigurðsson ráðherra og Svavar Jó-
hannsson, hinn nýskipaði útibússtjóri.
Svavar Jóhannsson er fæddur 13. október
1919, hann er einn af reyndustu starfsmönn-
um Búnaðarbankans, hóf fyrst störf sem send-
ill 1. janúar 1935, en frá 1940 eftir nám í
Verslunarskóla hefur hann verið fastráðinn
starfsmaður bankans. Hann hefur starfað í
flestum deildum bankans, Iengst af sem full-
trúi í sparisjóðsdeild, en í janúar 1963 var hann
skipaður skipulagsstjóri bankans og hefur gegnt
því starfi síðan.
Garðaútibú Búnaðarbankans er 12. útibúið,
sem bankinn starfrækir utan Reykjavíkur, en
frá nokkrum þeirra eru reknar afgreiðslur á
fámennari stöðum. í Reykjavík rekur bankinn
5 útibú.
Afgreiðslutími útibúsins í Garðabæ verður
frá kl. 13.00 til kl. 18.30 frá mánudegi til föstu-
dags. Starfsmenn verða fyrst um sinn auk úti-
bússtjóra aðeins tveir, Gísli Helgason, gjald-
keri og Erla Hjartardóttir, bókari.
Nýr bankasfjóri í
Alþýðubankanum hf.
Stefán Magnús Gunnarsson.
Nokkrar sviptingar hafa verið í
málefnum varðandi Alþýðubank-
ann hf., að undanförnu. Pær svipt-
ingar verða ekki ræddar hér, enda
málið enn á rannsóknarstigi. Svipt-
ingum þessum lauk innan bankans
með því að bankastjórar bankans
létu af starfi.
Nýr maður var ráðinn að bank-
anum og skyldi hann í samvinnu
við bankaráð bankans ráða fram
úr vandamálum bankans nokkra
stund.
Pað var mál allra er hlut áttu
að máli, þegar nokkuð hægðist um,
að bankanum væri það mikilvægt,
að vel tækist um val nýrrar banka-
stjórnar.
Hinn 1. júní s.l. var Stefán M.
Gunnarsson, skipaður bankastjóri
Alþýðubankans hf. Nokkrar vanga-
veltur höfðu verið manna á meðal
um hver skyldi hljóta bankastjóra-
starfið. Um það verður vart deilt,
að val hins nýja bankastjóra var
ánægjulegt og mjög gott.
Stefán M. Gunnarsson er fædd-
ur árið 1933 að Æsustöðum í
Langadal, sonur hjónanna síra
Gunnars Árnasonar og Sigríðar
Stefánsdóttur. Hann tók próf frá
Samvinnuskólanum 1954. Hann
30 BANKABLAÐIÐ