Bankablaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 8
allir bankamenn skuli vera slysatryggðir. Trygg-
ingin gildir allan sólarhringinn. Tryggingar-
bætur eru mismunandi og verða endurskoðað-
ar um hver áramót miðað við hækkun launa.
10. Gildistími.
í 1. mgr. 22. gr. segir að samkomulagið
gildi í 2 ár en í 2. mgr. er heimildarákvæði til
þess að segja því upp með þriggja mánaða
fyrirvara miðað við 1. júlí 1977.
11. Ýmis atriði.
Þá voru gerðar ýmsar fleiri breytingar sem
of langt yrði að telja upp hér. Ennfremur voru
gerðar ýmsar bókanir, m. a. um dagvistunarmál,
lífeyrisréttindi í einkabönkum og réttarstöðu-
mál sem ef til vill var veigamesta málið sem
um var samið í þessum samningum og er því
máli gert nánari skil á öðrum stað í blaðinu.
SRS.
Þróun kaupmátlar
Samanburður á kjörum launþegahópa reynist
erfiðari með hverjum nýjum kjarasamningi
sem gerður er, enda hefur í samningagerð síð-
ustu ára, verið vaxandi tilhneiging til þess að
prjóna við samning nýjum ákvæðum, en þau
eldri látin standa, og þegar upp er staðið eftir
hverja samningagerð liggur fyrir flóknari samn-
ingur en sá næsti á undan. Með því að reikna
út kaupmátt launa má aftur á móti fá raunhæf-
an samanburð á milli launþegahópa, og hefur
það verið gert í línuritinu, sem birtist hér með.
í því er samanburður gerður á þróun kaup-
máttar útborgaðra launa þriggja launþegahópa
frá árslokum 1973 þar til eftir samningana á
fyrri hluta þessa árs. Kaupmáttur verkamanna-
launa er reiknaður út af kjararannsóknarnefnd,
kaupmáttur 14. flokks ríkisstarfsmanna í
Bandalagi Háskólamanna er reiknaður út af
B.H.M. og loks er sýnd þróun kaupmáttar
launa í 7.—8. flokki bankamanna, en laun í
þeim flokkum eru gott dæmi um almenna
launaþróun bankamanna.
Frá árslokum 1973 rýrnaði kaupmáttur
launa bankamanna jafnt og þétt allt fram á
mitt árið 1975 að hann náði lágmarki og hafði
þá rýrnað um nær 40% á einu og hálfu ári.
Á sama tíma rýrnaði kaupmáttur 14. fl. BHM
um 25%, en verkamanna um 5%. Seinni hluta
árs 1975 er gerð leiðrétting á launum banka-
manan, svo að þeir vinna aftur 10% af þeim
40% sem tapast höfðu. Á fyrri helmingi árs-
ins 1976 rýrnar kaupmáttur bankamannalauna
enn, þar til með síðustu kjarasamningum að
kaupmáttur þeirra verður lítið eitt betri en í
árslok 1975. Frá árslokum 1973 til september-
loka 1976 hefur kaupmáttur bankamannalauna
því rýrnað um 28%, BHM 14 um 29% en
verkamanna um 8%. Ef kaupmáttur banka-
mannalauna hefði ekki rýrnað meira á um-
ræddu tímabili en kaupmáttur verkamanna-
launa hefur gert hefðu mánaðarlaun í 8. flokki
átt að vera um 30. þús. kr. hærri en þau voru
í september s.l.
Aftur á móti sýnir þessi samanburður jafn-
framt að kjör bankamanna eru engu betri en
ríkisstarfsmanna í BHM, sem um þessar mund-
ir bera sig hvað verst yfir því að hafa orðið
afskiptir í kjaramálum að undanförnu.
Athuga ber að línuritið sýnir einungis breyt-
ingar á kaupmætti launa hvers hóps frá árs-
lokum 1973, en ekki raunverulegan kaupmátt
á hverjum tíma.
6 BANKABLAÐIÐ