Bankablaðið - 01.12.1976, Page 27

Bankablaðið - 01.12.1976, Page 27
menna bankastarfsmann og atvinnu- lýðræði. 1 því sambandi var sam- þykkt eftirfarandi ályktun. „Notkun og þróun háþróaðra tölvukerfa í bankakerfinu í Dan- mörku síðustu 10 árin hefur haft í för með sér stöðuga breytingu á daglegu starfi bankamannsins og tækniþróunin heldur stöðugt áfram. Pessar breytingar hafa mikil áhrif á: starf hvers einstaks, tilflutning samstarfsfólks, hvenær dags starf- ið er unnið, menntun/endurmennt- un og síðast en ekki síst öryggi í starfi. Bankamenn krefjast trygg- ingar á, að skipulagsbreytingar, auk- in sjálfvirkni og aðrar breytingar sem þýðingu hafa fyrir starfsör- yggi bankamanna, geti aðeins orðið í samvinnu við starfsmennina sjálfa strax í upphafi og að hagnaður sem af slíkum skipulagsbreytingum hlýst komi einnig starfsfólkinu til góða.“ Pá urðu miklar umræður um meðlimagjald og nauðsyn þess að fjárhagur sambandsins væri góður. Samþykkt var að hækka gjaldið upp í Dkr. 47,30 á mánuði eða Dkr. 567,60 á ári (þ.e. nálægt 18.000 ísl. kr.). Gjaldinu er skipt þannig að 55% fara til starfsemi sambandsins 30% fara f verkfalls- sjóð og 15% til starfsmannafélag- anna. Birte Roll Holm var endurkjör- in formaður sainbandsins svo og allir stjórnarmeðlimir sem í endur- kjöri voru en þrír nýir komu inn í stjórnina, þar af tvær konur og er nú þriðjungur stjórnarinnar konur. S.R.S. Nýr formaður í DSL Ping starfsmanna dönsku spari- sjóðanna var haldið dagana 25. og 26. maí s.l. í Álaborg. Bent Rasmussen frá Ikast var kjörinn formaður DSL. Bent er 36 ára og hefur verið 1. varaformaður sambandsins um nokkurra ára skeið. Bent Rasmussen. Miklar umræður voru á þinginu um hugsanlega sameiningu á dönsku samböndunum tveimur en nú er sérstakt samband fyrir starfs- menn sparisjóðanna og annað fyrir starfsmenn bankanna. DSL hefur u.þ.b. 9000 meðlimi. Nýtt sam- einað samband mundi telja u.þ.b. 35 þúsund meðlimi og yrðu samtök bankamanna í Danmörku efld verulega ef af sameiningu yrði. Meðal samþykkta sem gerðar voru má nefna: — Fækkað var í stjórninni um 20% úr 20 í 16. — Pingfulltrúum var fækkað um 25%. — Meðlimagjöldin voru hækkuð með það markmið að hægt yrði að greiða árlega Dkr. 3 millj. (íkr. 99 millj.) í verkfallssjóð. S.R.S. Ábyrgðarskuldbinding NBU vegna deilna 450 milljón króna (10 millj. skr.) sameiginlegur verkfallssjóður norrænu bankasambandanna. Hinn 5. desember 1975 var und- irritaður í Kaupmannahöfn samn- ingur á milli allra norrænu banka- mannasambandanna um gagn- kvæma aðstoð ef til verkfalls kem- ur hjá einhverju meðlimasam- banda NBU. Birtist samningurinn hér í heild. Ábyrgðarskuldbinding vegna að- stoðar í deilum, sem bitna á að- ildarsamtökum Norræna banka- mannasambandsins. Undirrituð aðildarsamtök Norræna bankamanansambandsins gangast undir neðanskráða skuldbindingu í samræmi við 8. gr. félagslaganna. Tíu milljónir - 10.000.000 s.kr. sem veita skal því eða þeim að- ildarsamtökum, sem lenda í vinnu- deilu við gerð kjarasamninga. Sér- hvert undirritaðs sambands geng- ur í ábyrgð í réttu hlutfalli við tölu félaga sinna við næstu áramót á undan og tölu samanlagðra fé- laga neðanskráðra sambanda á Frá undirritun ábyrgðarskuldbindingarinnar. BANKABLAÐIÐ 25

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.