Bankablaðið - 01.12.1976, Qupperneq 24
skiptir máli, en það eru hvorki víxlar né völd,
heldur heilbrigð sál og gott hjarta.
Ég sendi frú Kristínu og börnum þeirra Svav-
ars hugheilar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hans.
Stefán Hilmarsson.
Kveðja frá Starfsmannafélagi
Búnaðarbanka íslands
Vorið 1955 kom til sumarstarfa í Búnaðar-
banka íslands tvítugur nýútskrifaður kennari,
Svavar Markússon að nafni.
Hann réðst til starfa í víxladeild bankans og
ávann sér þegar álit sem góður starfsmaður
og góður samstarfsmaður.
Næstu 2 vetur kenndi hann, og vann í bank-
anum á sumrin, en það álit, sem hann ávann
sér hér, hlaut óhjákvæmilega að leiða til þess,
að sóst yrði eftir auknum störfum hans, þannig
að veturinn 1957—58 var hann hér í hálfu
starfi samhliða kennslunni, og loks var hann
fastráðinn til fullra starfa í bankanum 1. nóvem-
ber 1958. Hann varð fulltrúi í víxladeild 1963,
deildarstjóri í sömu deild 1. ágúst 1967, sér-
stakur fulltrúi bankastjórnar 1. janúar 1974, og
loks var hann valinn til að taka við starfi að-
stoðarbankastjóra, þegar í fyrsta skipti var valið
í þær stöður í þessum banka síðast liðið sumar,
en örlögin réðu því, að til þeirra starfa komst
hann ekki.
Samstarfsmenn hans setti hljóða, þegar sú
harmafregn barst morguninn 28. október síðast
liðinn, að Svavar hefði látist um nóttina. Allir
höfðu vonað, að sá erfiði sjúkdómur, sem hann
bar af svo miklu æðruleysi, sleppti honum úr
greipum sér, svo að hann ætti afturkvæmt til
starfa.
Eftirlifandi eiginkona hans og dætur eiga
nú samúð okkar alla.
LAUNATÖFLUR
NR. 61. 1.7. 1976 NR. 62. 1.10, 1976 NR. 63. 1.11 1976
1. þrep 2. þrep 3. þrep 1. þrep 2. þrep 3. þrep 1. þrep 2. þrep 3. þrep
1. fl. 46.920 49.280 51.950 49.795 52.260 55.030 51.345 53.885 56.740
2. fl. 54.520 57.085 59.550 57.805 60.475 63.140 59.605 62.355 65.105
3. fl. 64.270 65.710 67.760 68.175 69.610 71.870 70.295 71.775 74.105
4. fl. 70.020 72.895 75.975 74.950 78.030 81.315 77.280 80.455 83.845
5. fl. 78.030 80.085 82.135 82.750 84.910 87.065 85.325 87.550 89.775
6. fl. 84.600 87.270 90.350 89.735 92.505 95.790 92.525 95.380 98.770
7. fl. 91.890 93.430 95.485 97.435 99.075 101.235 100.465 102.155 104.385
8. fl. 99.795 103.900 107.805 105.750 110.165 114.270 109.040 113.590 117.825
9. fl. 110.885 113.965 117.045 117.555 120.845 124.025 121.210 124.605 127.880
10. fl. 122.025 127.005 131.930 130.565 135.895 141.170 134.625 140.120 145.560
11. fl. 135.115 139.835 144.765 145.995 151.030 156.365 150.535 155.725 161.230
12. fl. 149.745 154.725 159.650 163.220 169.765 174.025 168.295 175.045 179.435
22 BANKABLAÐIÐ