Bankablaðið - 01.12.1976, Qupperneq 46
Kosning í nefndir fór á þessa leið:
Skemmtinefnd:
Sigrún Ólafsdóttir,
Sigrún Kröyer,
Ásgeir Jónsson,
Ingibjörg Júlíusdóttir,
Sigurbjörg Ámundadóttir.
Til vara:
Kristín Jónsdóttir,
Eyjólfur Ellertsson.
Bókasafnsnefnd:
Hrafnkatla Einarsdóttir,
Kristín María Kristinsdóttir,
Vilhelm Steinsen.
Náms- og kynnisfarasjóður:
Pétur Stefánsson,
Sigurður Gústafsson,
Karl Hallbjörnsson,
Erla Sigurðardóttir,
Ólafia Axelsdóttir.
Til vara:
Þorkell Þorsteinsson,
Sigríður Agnarsdóttir.
íþróttanefnd:
Helgi Guðmundsson,
Þórður Bergmann,
Jóhann Birgisson.
Taflnefnd:
Jóhann örn Sigurjónsson
Svana Samúelsdóttir
Birgir Friðþjófsson.
Frá skemmtinefnd:
Mikil gróska hefur verið í félagslífinu, farnar
hafa verið margar leikhúsferðir bæði í Iðnó og
Þjóðleikhúsið og hefur þátttaka verið nokkuð
góð.
Haldnir voru hinir árlegu vor og haustfagn-
aðir í sal starfsmannafélagsins að Laugavegi 77.
Færri komust að en vildu enda kalda borðið
hans Sigurjóns rómað mjög fyrir gæði. Alfa
Beta lék fyrir dansi í bæði skiptin við góðan
orðstý og ekki má gleyma hlut skemmtinefndar
sem skenkti stórum við barinn.
Á heitasta degi ársins, 9. júlí var lagt af
stað í hina árlegu sumarferð. Að þessu sinni
sem oftar var farið í Þórsmörk. Veðurguðirnir
voru okkur mjög hagstæðir alla helgina, en það
heyrði til tíðinda á þessu rigningarsumri. Á
laugardagskvöldið var kveiktur varðeldur og
virtist fólk skemmta sér hið besta.
Að áliðnu sumri var haldið ,,diskótek“ að
Laugavegi 77, og var þetta eins konar kveðju-
dansleikur fyrir sumarfólkið, tókst það hið besta
en fleiri hefðu mátt koma.
Fyrirhugaðar eru fleiri leikhúsferðir á vetri
komanda, svo og hin árlega jólavaka, sem hald-
in verður á Hótel Sögu föstudaginn 3. desem-
ber. Einnig er fyrirhuguð jólatrésskemmtun fyr-
ir börn starfsfólks 2. jan. í Útgarði.
Margt er í bígerð sem ekki þolir dagsins
ljós ennþá, og vonandi verður félagslífið jafn
líflegt á vetri komanda og á síðast liðum vetri.
Frá skáknefnd:
Fyrst á dagskrá skáknefndar Landsbankans,
starfsárið 1976, var þátttaka í skákkeppni
stofnana. tvær sveitir frá bankanum tóku þátt
í keppninni, A og B sveit.
í A-sveitinni tefldu þessir menn:
1. borð Hilmar Viggósson ( 3 v af 7)
2. borð Jóhann ö. Sigurjónsson (6 v. af 7)
3. borð Leifur Jósteinsson (5 v. af 7)
4. borð Sólmundur Kristjánsson (1 v. af 4)
Varam. Baldur Ólafsson (V2 v. af 2)
Varam. Helgi Guðmundsson (0 v. af 1)
Alls fékk sveitin 15 V2 vinning af 28 möguleg-
um og þessi árangur nægði til 8. sætis. Efst
varð Skákprent með 21 v., þá Útvegsbankinn
með 20 v. í hraðskákkeppninni hafnaði Lands-
bankinn í 6. sæti.
Fyrir utan hefðbundna starfsemi skáknefnd-
arinnar, skal sérstaklega getið fjölteflis argen-
tíska stórmeistarans Najdorfs. Keppni meistar-
ans við bankamenn var skemmtilegt innlegg í
skáklíf bankanna, enda var Najdorf bæði fljót-
ur að leika og skemmtilegur í framgöngu.
Adolf Björnsson, Útvegsbankanum átti allan
heiðurinn af því að koma fjölteflinu á. Hann
fékk Najdorf til að tefla, útvegaði húsnæði og
sá um allar veitingar. Adolf sýndi með þessu
enn einu sinni hug sinn til skáklífs innan bank-
anna, og á hann miklar þakkir skilið fyrir.
í október s.l. hélt 10 manna lið frá Lands-
44 BANKABLAÐIÐ