Bankablaðið - 01.12.1976, Qupperneq 50
Pétursson, Þórir Baldvinsson, Svavar Jóhanns-
son og Haukur Þorleifsson, en hann dvaldi
erlendis þegar afmælismótið var haldið.
Störf nefnda hafa verið með ýmsu móti á
árinu. Sumarbústaðanefnd hefir verið mjög
athafnasöm og í haust voru fest kaup á norsk-
um sumarbústað sem fluttur verður á land fé-
lagsins í Þjórsárdal. Verður húsið flutt austur
næsta vor, en í vetur verður því breytt nokkuð
og lagfært. Mjög góð nýting var á sumarbú-
stöðum félagsins í sumar. Á Snæfellsnesi var
fullbókað frá júní til september og svipað er
að segja um sumarbústaðina í Þjórsárdal. Að-
staða félagsins að Laugarvatni var minna notuð
en oft áður.
Skáknefnd hefir haldið skákmót innan raða
félagsmanna. Keppt var um styttu sem gefin
var til minningar um Jónas Benónýsson, af
Taflfélagi Hreyfilsmanna. Efstir og jafnir voru
þeir Stefán Þormar Guðmundsson og Guðjón
Jóhannsson. Eiga þeir óháð einvígi um efsta
sætið. Einnig fór 10 manna sveit til Húsa-
víkur í október og keppti við félagsmenn tafl-
félagsins þar. Sveit Búnaðarbankans vann með
6 V2 á móti 3 V2 . Hraðskákmót vann okkar
sveit með miklum yfirburðum.
íþróttanefnd hefir gert nokkrar virðingar-
Sólon Sigurðssott afhendir Hannesi Pálssyni gjöf frá
Sambandi ísl. bankamanna.
verðar tilraunir með trimmferðir í nágrenni
bæjarins undir stjórn Theodóru Thoroddsen.
Ekki hefir hún haft árangur sem erfiði því
þátttaka var nánast engin.
Námsstyrk á árinu hlaut Árni Kristjánsson,
og starfaði hann hjá Cristjania bank og kredit
kasse, Osló.
Tveir starfsmenn fengu utanfararstyrk.
Gunnar Már Hauksson ferðaðist með fjölskyldu
sína til Ítalíu, Noregs og Danmerkur. Ása
Þórðardóttir, ferðaðist einnig víðs vegar um
Ítalíu í mánaðartíma.
í júní s.l. var Þórhallur Tryggvason skipað-
ur bankastjóri við Búnaðarbankann. Skömmu
síðar voru ráðnir tveir aðstoðarbankastjórar,
þeir Hannes Pálsson útibússtjóri Búnaðarbank-
ans við Hlemm, og Svavar Markússon forstöðu-
maður víxladeildar. Svavar átti við mikla van-
heilsu að stríða í sumar og lézt hann 28. okt.
s.l. Starfsmenn bankans sakna góðs samstarfs-
manns og félaga sem var aðeins 41 árs að
aldri þegar hann lézt.
Nýtt útibú var opnað í Garðabæ fsötudag-
inn 3. sept. Svavar Jóhannsson hefir verið
ráðinn útibússtjóri, og auk hans gjaldkeri og
bankaritari.
Stefáni Pálssyni var í maí s.l. veitt staða for-
stöðumanns Stofnlánadeildar landbúnaðarins
og í stöðu starfsmannasjóra var ráðinn Sverrir
Sigfússon. Einnig var staða skipulagsstjóra
auglýst laus til umsóknar en ekki hefir verið
ráðið í hana ennþá. Tvær deildarstjórastöður
voru auglýstar og ráðið í þær og fimm fulltrúa-
stöður.
Merkisaftnæli:
70 ára Bjarni Jónsson, deildarstjóri,
60 ára Guðmundur Árnason, aðalbókari,
30 ára Jóhann Helgason, aðalféhirðir, Ak.,
Sigríður Árnadóttir, bankaritari,
Sigurborg Hjaltadóttir, deildarstjóri.
Starfsafmæli:
35 ára Garðar Þórhallsson, aðalféhirðir.
Margháttað félagslíf er í undirbúningi í vet-
ur þegar jólaönnum er lokið og nýtt ár hefir
hafið göngu sína.
48 BANKABLAÐIÐ