Bankablaðið - 01.12.1976, Side 51
Fréttir úr Iðnaðarbankanum
Aðalfundur SI var haldinn 3. mars s.l. í
stjórn voru kosin:
Formaður, Þorgrímur Einarsson,
Gjaldkeri, Stefán Hjaltested,
Ritari, Erna Haraldsdóttir.
Félagsstarfið í ár hefur í framhaldi af landa-
leitunum svokölluðu í fyrra, að mestu snúist
um sumarbústaðamál. Eftir að samningar tók-
ust við Kristleif Þorsteinsson bónda á Húsa-
felli, Borgarfirði, um lóðarleigu, var boðin út
bygging sumarhúsa fyrir Starfsmannafélag Iðn-
aðarbankans. Sjö tilboð bárust, en á almennum
Fyrsta húsið risið.
Og kvenfólkið lét ekki á sér standa.
félagsfundi hjá félaginu, var ákveðið að hafna
þeim öllum, þar sem þau þóttu of há, og að
félagsmenn skyldu sjálfir reisa bústaði undir
yfirstjórn smiðs. Mikil og góð þátttaka hefur
verið í smíðunum, eða samtals um 280 dagar,
og á félagið nú þrjá fokhelda sumarbústaði að
Húsafelli.
Árshátíð félagsins var haldin að Hótel Esju
þann 7. febrúar með miklum ágætum. Jóla-
gleði fyrir börn félagsmanna var haldin að
venju, svo og spilakvöld og bingó í vor.
Stöðuveitingar á árinu:
Gísli Benediktsson, útibússtjóri í Breiðholts-
útibúi,
Jóhann ísleifsson, deildarstjóri í víxladeild,
Sigurjón Sigurðsson, útibússtjóri í Laugar-
nesútibúi.
Aftnæli á árinu:
Jóhann Egilsson, 50 ára 29. ágúst.
Félagsmenn í SI eru í dag áttatíu.
Starfsmannafélag Reiknistofu
bankanna
Starfsmannafélag Reiknistofu bankanna var
stofnað árið 1975. Fyrsti formaður félagsins
var Gísli Jafetsson.
Núverandi stjórn, sem kosin var á fram-
haldsaðalfundi í nóvember 1976, skipa: Björn
Gunnarsson formaður, Þórarinn Guðmundsson
ritari og Kjartan Nielsen gjaldkeri, og í vara-
stjórn, Jón Gunnar Pálsson og Rolf Hanssen.
Endurskoðendur reikninga félagsins voru kosn-
ir Sigurður V. Halldórsson og Guðbrandur K.
Jónasson. Á framhaldsaðalfundi var einnig kos-
ið í nefndir.
Launaráð:
Jón Gunnar Pálsson
Guðbrandur K. Jónasson
Skemmtinefnd:
Björn Tryggvason
Rolf Hanssen
Theodór Magnússon
BANKABLAÐIÐ 49