Bankablaðið - 01.12.1985, Qupperneq 6

Bankablaðið - 01.12.1985, Qupperneq 6
6 Yngvi Örn Kristinsson: KJARAMÁL 1. Þróun kaupmáttar. Kaupmáttur kauptaxta bankamanna hefur rýrnað um 24% þegar borið er saman ársmeðaltal kauptaxta 1981 og 1984 og jafnvel enn meira ef miðað væri við árið 1982. Nú er hins vegar útlit fyrir að smávegis kaupmáttar- aukning verði á þessu ári eða 2.7% hækkun miðað við árið 1984. Þessi niðurstaða fyrir 1985 er ívið hagstæð- ari en ASÍ félagar mega búast við, þar sem nú er reiknað með að kaupmáttur taxta ASÍ verði lakari á þessu ári en fyrra. 2. Launaskrið. Þróun kauptaxta segir auðvitað ekki alla söguna um þróun launa. Launa- skrið kemur einnig þar við sögu. Með launaskriði er átt við hækkun kaup- taxta umfram grunnkaupshækkanir eða verðbætur (ef þær eru til staðar). Frá ársbyrjun 1983 virðast meðallaun bankamanna hafa hækkað um 7% um- fram samningsbundnar hækkanir. Sambærilegar tölur fyrir ASÍ, starfs- fólk í afgreiðslu og skrifstofustörfum eru mun hærri. Þannig eru laun skrif- stofufólks talin hafa hækkað um 20% frá ársbyrjun 1983 og laun starfsfólks við afgreiðslustörf um 14% eða tvisvar eða þrisvar sinnum meira en mælist hjá bankafólki. Rétt er þó að geta að mikil aukning hefur verið í röðum bankamanna undanfarin ár og kann það að draga niður meðallaun banka- fólks. Meginhluti nýráðninga er í neðri hluta launastigans. Þetta þýðir að sennilegt er að laun þeirra starfs- manna sem starfað hafa í bönkum frá ársbyrjun 1983 hafi hækkað meira en áðurgreind 7% gefa til kynna. Á heildina litið virðist þó líklegt að okkar laun hafi dregist aftur úr. 3. Stefnan í kjaramálum. Megin baráttumál okkar í kjara- málum á undanförnum árum hafa verið eftirfarandi: Hærri laun fyrir þá sem hyggj- ast gera bankastörf að atvinnu til lengri tíma ef til vill að ævistarfi. Þetta hefur t.d. náðst fram með hækkun starfsaldursálaga. Endurskipulagning núverandi launakerfis. Markmiðið hér hef- ur verið tvíþætt. í fyrsta lagi að færa ákvæði kjarasamnings t.d. hvað varðar starfsheiti og taxta í átt til raunverulegrar fram- kvæmdar bankamanna. Langt er í land með að þetta hafi tekist þó nokkur áfangi hafi náðst í kjara- samningunum í nóv. 1984 síðast- liðnum en þá tókst að knýja í gegn fjölgun launaflokka og endurröðun starfsheita í launa- flokka. Ljóst er þó að áfram þarf að knýja á um fjölgun launa- flokka, ef takast á að fella þær launagreiðslur sem nú tíðkast í efri launaflokkum inná taxta SÍB. í öðru lagi hefur markmiðið verið að einfalda núverandi launakerfi og ef til vill gera það sveigjanlegra gagnvart starfs- fólki. Með því fyrrnefnda er til dæmis átt við að fækka mögu- legum launaþrepum en með seinna aðallega hugmyndir um launaaukakerfi sem byggt væri á einhvers konar mati á starfs- hæfni einstaklings eða hóps sem hann tilheyrir. Kerfi af þessum toga hafa mjög breiðst út á undanförnum árum. í núverandi kjarasamningi er bókun um að nefnd skuli starfa milli aðila að vinna að framgangi beggja þessara mála fyrir næstu áramót. Jafnframt þessu hefur verið reynt að knýja á um hærri lág- markslaunaflokk. Áfangasigur vannst í samningunum i nóvember en með þeim færðist lágmarks- flokkurinn í 8.3. En betur má ef duga skal. Krafa síðasta þings SÍB er að laun fyrir 8.3 nægi til samsvari framfærslukostnaði vísitölufjölskyldunnar. Hærri laun !!! 4. Næsta samningalota. Samningar eru nú næst lausir frá áramótum. ljóst er að áfram verður svipaðri stefnu á kjaramálum og verið hefur. Yngvi Örn er stjórnarmaður í SÍB og starfar sem hagfrœðingur íSeðlabanka íslands. Stjórn SÍB þingar með formönnum aðildarfélaganna. Á dagskrá þessa fundar voru kjaramál, nýja bankalöggjöfin, taeknimál og jafnréttismál.

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.