Bankablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 44

Bankablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 44
44 Frá starfsmannafélögunum Ur félagslífi í Búnaðarbankanum Hjá Starfsmannafélagi Búnaðar- bankans hefur verið líflegt starf og hefur ýmislegt verið gert til andlegrar og líkamlegrar upplyftingar. í byrjun júní var farið í ÞÓrsmörk. Þátttaka hefði mátt vera betri og veður skárra, en það var bara bætt upp með góðum félagsskap og fjöri. Það verður betra veður næst. Þann 6. júlí í sumar var afhentur nýr og fullbúinn sumarbústaður í Aðaldal S. Þing. Útibú bankans á Akureyri sá alfarið um framkvæmd og val á inn- réttingum og innbúi, sem er allt hið glæsilegasta. Fullbókað var í bústað- inn allt sumarið, enda ekki á hverjum degi sem fólk getur teygað að sér þingeyskt loft á einum af fegurstu stöðum landsins. Þetta er eini bústaður starfsmannafélagsins á Norðurlandi. Þann 14. sept. var farið í fjöruferð upp í Hvalf jörð. Mjög góð þátttaka var, um 100 manns. Aldurshópurinn var mjög breiður og ferðin hin besta. Þarna voru uppgötvuð mörg undur nátt- úrunnar hjá börnunum, mikið spurt og mörgu þurfti að svara. Grillaðar voru pylsur um miðjan daginn. Þarna hefur einhver eflaust farið í sínn fyrsta vísindaleiðangur. 2 fulltrúar starfamannafélagsins fóru til Egilsstaða helgina 20.-22. sept. og héldu þar fund með starfsfólki útibúsins á föstudeginum. Á laugar- daginn var svo haldið þing í Valaskjálf með bankamönnum á Austurlandi, sem S.Í.B. gekkst fyrir. Á sunnudeginum fór Steinþór Magnússon með fulltrú- ana í útsýnisferð um Fljótsdalshérað í alveg yndislegu veðri. Verður ferð þessi ógleymanleg bæði vegna feg- urðar héraðsins og svo ekki síður vegna frábærrar leiðsagnar Steinþórs. 34. þing SÍB var haldið að Hótel Loftleiðum dagana 18. og 19. apríl 1985. Þingið sátu 65 fulltrúar hinna 17 Fulltrúarnir tóku svo kvöldflug til Reykjavíkur á sunnudagskvöldið eftir einstaka ferð. Þann 9.11.85 var haldinn dansleikur á Hótel Esju, komu þar rúmlega 200 manns og geysilegt fjör. Var þar stiginn verðbréfavals og vaxtatangó, að ógleymdum vísitöluhringdans. Þann 7.02.86 verður starfsmannafé- lagið 50 ára. Undurbúningur fyrir af- mælishátíð er í fullum gangi og er sérstök afmælisnefnd skipuð valin- kunnu sæmdarfólki úr bankanum, sem sér um þann undirbúning. aðildarfélaga. Frásögn af þinginu er að finna í sambandstíðindum nr. 1/1985. Mjög röggsamur fundarstjóri á 34. þingi SÍB var Jens Sörensen, fyrrverandi vara- formaður SÍB. 34. ársþing SÍB Tölvupappír im FORMPRENT Hverfisgotu 78. símar 25960 - 25566

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.