Bankablaðið - 01.12.1985, Síða 39

Bankablaðið - 01.12.1985, Síða 39
39 Frá starfsmannafélögunum Starfsmannafélag Útvegsbankans hélt árshátíð sína í Súlnasal, Hótel Sögu, föstudaginn 27. september síðastliðinn. Húsfyllir var og mikill fögnuður meðal hátíðagesta, sem skemmtu sér konunglega við neyzlu rétta hótelsins og veiga ríkisins, fjöl- breyttum skemmtiatriðum og dúndrandi dans fram í morgunsár. Reynir Jónasson, aðstoðarbanka- stjóri flutti ræðu kvöldsins og kom víða við. Veizlustjóri var Hjálmtýr Hjálmtýs- son, sem jafnframt stýrði kröftugum fjöldasöng. Flosi Ólafsson, leikari, fór á kostum um bankadag og bankaveg. Kvennabúr bankans var opnað á söngpalli hússins, skrautlega klætt og litað með furðulegustu uppákomum. Hafnarfjarðarútibúið bar sigur úr býtum eftir vandaðan úrskurð dóm- nefndar, en hana skipuðu, Halldór Guðbjarnarson, bankastjóri, Svavar Ármannsson, aðstoðarforstjóri Fisk- veiðasjóðs og Gunnar Björnsson, for- stjóri hagdeildar. Árshátíðin var skemmtinefnd fé- lagsins til mikils sóma. Hana skipa, Brynjólfur Gíslason, formaður, Sig- ríður Hjaltadóttir, Kristján Her- mannsson, Hildur Pálsdóttir og Þórdís Úlfarsdóttir. Frá félagi starfsfólks Alþýðubankans hf. Að þessu sinni var vorferðinni okkar ætlað að slá tvær flugur í einu höggi. Þetta var skemmtiferðalag eins og venja er til og einnig átti að fram- kvæma töluvert. Haldið var til Þingvalla í rútu á laugardagsmorgni í besta veðri og ekið sem leið liggur að sumarbústað bankans. Þar var svo hafist handa og bústað- urinn skrúbbaður hátt og lágt að innan og málaður og fúavarinn að utan. Aðaltilgangurinn með þessari ferð var að gróðursetja rúmlega 60 trjá- plöntur af hinum ýmsu tegundum og einnig nokkur fjölær blóm. Síðan var hliðið málað og girðingin skoðuð gaum- gæfilega og endurbætt þar sem talinn var fræðilegur möguleiki á að kind gæti troðið sér í gegn. Þegar haldið var heim um kvöldið var ekki laust við að fólk væri farið að hlakka til að komast í sumarfrí og dvelja á Þingvöllum eina viku. Árlega er kosin skemmtinefnd, á aðalfundi FSA. Hennar stærsta verk- efni er að halda árshátíð bankans. Það er í mörg horn að líta, því auk þess að hugsa fyrir því að allir fái nóg að eta og drekka, er allt skemmtiefni heimatilbúið. Annáll ársins er gjarnan hafður bæði í bundnu og óbundnu máli. Hér er óspart tekið til hendinni. Einnig er fundið upp á hinum ýmsu leikjum og gert létt grín, bæði að mönnum og málefnum. Milli rétta er svo sungið af hjartans list og að sjálf- sögðu dansað til kl. 3. Nokkrir æfa hér íþróttir og einstöku sinnum kemur fólk saman og spilar Bridge. STYRKIR Styrkir úr náms- og kynnisferðasjóði Starfsmannafélags Útvegsbankans 1985: Feröastyrkir: Áslaug Hringsdóttir, Björn Haraldsson, Bragi Björnsson, Loftur J. Guðbjartsson, Sigurður G. Blöndal. Námsstyrkur: Margrét Jónsdóttir. STARFSMANNAANNÁLL 1985 Starfsafmœli: 15 ára: Dagbjört Halldórsdóttir, aðal- banka, 10. febrúar. Kristján Hermannsson, aðal- banka, 1. nóvember. 20 ára: Aðalheiður Alfreðsdóttir, Akur- eyri, 23. febrúar. Björgvin Ólafsson, aðalbanka, 31. marz Jóhann Sigurðsson, aðalbanka, 1. júní. Þorvarður Magnússon, aðalbanka, 2. október. 40 ára: Högni Þórðarson, ísafirði, 16. júní. 35 ára: Elísabet Kristjánsdóttir, aðalb. l.júní 30 ára: Björn Hjartarson, Laugavegi, 15. apríl. Sigríður Breiðfjörð, aðalbanka, 20. maí. Edda Aðalsteinsdóttir, Vestm. 18. júní. Jóhann Gíslason, aðalbanka, 24. október. Afmælisdagar: 90 ára: Gunnlaugur Jónasson, Seyðisfirði, 18. janúar 1985. 70 ára: Elín Konráðsdóttir, aðalbanka, 4. apríl 1985. Júlíus Jónsson, Akureyri, 31. maí 1985.

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.