Bankablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 46

Bankablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 46
Hressilegt fólk eftir margra klukkutíma stöðu í biðröð. Ferðamál Fjölmargir bankamenn, makar þeirra og börn nutu sérstakra ferða- kjara í sumar, þar sem ferðanefnd SÍB (Margrét Brynjólfsdóttir og Helgi Hólm) sömdu við Samvinnuferðir hf, um mjög ódýr fargjöld til Kaupmanna- hafnar og Álasunds. Menn þurftu þó að hafa fyrir því að ná í miða. Hér í Reykjavík voru miðarnir seldir á laug- ardagsmorgni og sumir byrjuðu að bíða snemma um nóttina. Félagar í SÍB úti á landi gátu hringt. Allir miðarnir seldust upp og vitum við ekki annað en að allir hafi átt ánægjulega för. Allar líkur eru á því, að SÍB reyni eitthvað svipað á næsta ári. Listaverkasýning Sú bráðskemmtilega hugmynd fæddist í vetur að SÍB gengist fyrir listaverkasýningu í sambandi við 50 ára afmælið. Það reyndist ekki neinum vandkvæðum bundið að ná til lista- fólks úr röðum bankamanna. Sýningin var síðan haldin um miðjan apríl og komu fleiri hundruð manns að skoða hana. Var þetta kærkomin til- breyting í starfi sambandsins. Meðal áhugasamra listunnenda má þekkja Kjartan Pál Einarsson í varastjórn SÍB, og Guðrúnu Ásgrímsdóttur og Þórunni Krist- insdóttur úr Búnaðarbankanum. Trúnaðarmanna- námskeið NBU Eins og margir vita, þá gangast nor- rænu samböndin árlega fyrir sameig- inlegu námskeiði fyrir trúnaðarmenn. í þetta skipti fór námskeiðið fram í Danmörku dagana 2.—6. september. Þátttakendur frá SÍB voru Gunnar Hans Helgason, Kristín Eiríksdóttir og Ingibjörg Ögmundsdóttir. Guðrún Ástdís Ólafsdóttir var einn af leið- beinendunum. Námskeiðið þótti takast mjög vel og tókst mjög vel að gefa þátt- takendum kost á að kynnast aðstöðu og viðfangsefnum hvers annars. Næsta námskeið verður haldið á svipuðum tíma í Svíþjóð á næsta ári. Kynningarstarf 21. september s.l. hélt stjórn SlB kynningarfund í Valaskjálf á Egils- stöðum. Þangað var boðið öllu banka- fólki á Austurlandi. Eins og áður, þá var samvinna milli SÍB og aðildarfé- laganna við þessa kynningu. Var farið í heimsóknir í mörg útibú dagana áður, en síðan var sameiginlegur fundur þar sem f jallað var um hin ýmsu málefni. Fyrst voru flutt stutt framsöguerindi en síðan fóru fram umræður í hópum. Þátttaka var mjög góð og komu þátt- takendur af öllu svæðinu, allt frá Höfn í Hornafirði til Vopnafjarðar. Að loknum fundinum var haldin sameig- inleg árshátíð og var þá sungið og dansað fram eftir nóttu. í vetur er fyrirhugað að heimsækja bankafólk á Suður- og Vesturlandi.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.