Bankablaðið - 01.12.1985, Side 19

Bankablaðið - 01.12.1985, Side 19
19 töluvert af hugbúnaði tilbúinn til að fá reynslu hjá notendum og var þá fyrsti starfsmaðurinn ráðinn í fullt starf. Frá þeim tíma hefur starfsmönnum f jölgað í 10, en sérstakrar íhaldssemi hefur gætt í mannaráðningum, bæði hefur valdið að eigendur og starfsmenn hafa lagt á sig kvöld- og helgarvinnu auk þess sem mikill skortur hefur verið á vönu fólki til að sinna þessum verk- efnum. Strax árið 1981 hófst innflutningur á tölvum fyrir fyrirtæki og hefur Kjartan Bjarnason rafmagnsverk- fræðingur haft veg og vanda af því að breyta tölvunum fyrir íslenskar að- stæður. Margir álíta þetta verk ein- ungis fólgið í því að merkja upp lykla- borð, en það er öðru nær. Þegar tölva kemur fyrst til landsins þarf að leysa mörg vandamál. Marga stafi íslenska stafrófsins vantar og þarf að finna leiðir til að koma þeim fyrir í föstum minnisrásum tölvunnar. Til þess að þetta megi gerast þarf að lesa innihald föstu minnisrásanna sem oft eru nefnd ROM eða EPROM. í þessum rásum er munstur þeirra stafa sem geymdir eru sem runa af núllum og einum. Oftast þarf að taka ákvörðun um það hvaða stafir sem fyrir eru skuli víkja fyrir íslenskum stöfum t.d. þ ð og hinum ýmsu broddstöfum.Þegar þetta hefur verið gert eru „brenndar” nýjar rásir í tölvuna. En málinu er ekki lokið hér því nú er aðeins búið að leysa brot af vandamálinu, eftir er að leysa upp stýriforrit tölvunnar til að breyta töflum er ákvarða hvar á lyklaborði stafirnir skuli staðsettir og einnig þarf að útbúa síur fyrir prentara þar sem margir þeirra eru ekki með sömu númer á íslensku stöfunum og er í tölvunum. Þegar tölvan er orðin „íslensk” er hægt að afgreiða hana. Hjá Microtölv- unni er talið að það taki u.þ.b. 4 klukkutíma að gera tölvu tilbúna fyrir íslenskan notanda. Hér á iandi hefur fyrirtæki eitt valið að kalla sam- setningu á ósamsettri tölvu fram- leiðslu sem mörgum þykir álitamál hvort rétt sé með farið þegar hvorki hönnun tölvunnar né framleiðsla ein- inga hennar er íslensk vinna. í dag eru tölvur frá Corona Data Systems mest seldu vélar fyrirtækis- ins, en auk þess hefur fyrirtækið um- boð fyrir Compucorp ritvinnslukerfi, Data General tölvur og ýmis önnur fyrirtæki á sviði vél- og hugbúnaðar. Corona tölvurnar eru PC samræmd- ar, en á þessum markaði þýðir það að þær nota sömu forrit og aukabúnað og IBM, PC, XT eða AT. Corona fram- leiðir hliðstæðar tölvur en telur sig þurfa að gera einungis tvennt til að standa sig í samkeppni við IBM: Hafa vélamar verið betri í frágangi og ódýrari! Hvort tveggja hlýtur að vera eitthvað nálægt lagi því Corona er einn af ör- fáum framleiðendum sem ekki á í erfiðleikum þessa dagana. Strax á stofnári var hafist handa um mikla forritagerð fyrir smátölvurnar, allt á viðskiptasviði. Ekkert fyrirtæki hér- lendis hefur útbúið fleiri kerfi fyrir PC tölvur en Microtölvan og er listinn orðinn langur. Fyrirtækið selur t.d. þrjár gerðir fjárhagsbókhaldsforrita, eitt fyrir fyrirtæki annað fyrir bók- haldsstofur og endurskoðendur og þriðja fyrir bæjar- og sveitafélög. Þá eru til tvær útfærslur af viðskipta- mannabókhaldi, tvær af skuldabók- haldi og tvær af birgðabókhaldi. Auk þessara kerfa hefur Microtölvan skrifað sölunótukerfi sem tengir saman viðskiptabókhald og birgðabók- hald, launabókhald, gjaldendabókhald sveitarfélaga og tollkerfi sem inni- heldur alla meðferð tollskjala, toll- vörugeymslu og verðútreikninga. Áðurnefnd bókhaldskerfi eru stöðl- uð og markvisst gerð til að henta fjölda fyrirtækja. Einnig fæst Microtölvan við kerfissetningu og forritun hug- búnaðar fyrir ýmis sérverkefni. í dag á fyrirtækið til mikið af forritum sem geta verið undirstaða fyrir margvísleg kerfi. En þetta nægir þó ekki til að sinna öllum þörfum. Gagnagrunnskerfi eru nú orðið mikið notuð fyrir forritun kerfa sem eru sjaldgæfari en svo að

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.