Bankablaðið - 01.12.1985, Side 26

Bankablaðið - 01.12.1985, Side 26
26 Jóhannes Magnússon deildarstjóri Þormóður Ögmundsson Þormóður Ögmundsson fyrrverandi aðstoðarbankastjóri Útvegsbankans lést þann 25. september sl. 75 ára að aldri. Hann hóf störf sem lögfræðingur hjá Útvegsbankanum árið 1937. 1967 varð Þormóður aðstoðarbankastjóri og gegndi því starfi þar til 1980 að hann hætti störfum fyrir aldurs sakir. Frá árinu 1941 var Þormóður virkur þátttakandi í stjórn Sambands ísl. bankamanna í 7 ár. GuðniJóhannsson Þann 2.11’85 lést Guðni Jóhannsson fyrrverandi starfsmaður Fiskveiða- sjóðs íslands. Hann var fæddur 8.10.1905 og var því áttræður er hann lést. Fæddur 4. maí 1932 Dáinn 18. maí 1985 Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu, Neshaga 4, laugardaginn 18. maí síðastliðinn. Jóhannes fæddist á Móum á Kjalar- nesi 4. maí 1932. Foreldrar hans voru Sigrún Árnadóttir og Magnús Þórðar- son, bóndi þar. Jóhannes var yngstur ellefu barna þeirra hjóna. Bræðurnir voru tíu og ein systir. Á lífi eru þrjú, Magnús, fulltrúi í Afurðasölu SÍS, Ár- sæll, umdæmisstjóri Pósts og Lands- síma íslands á Akureyri, og Þorbjörg eftirlaunaþegi. Á kreppuárunum, árið 1932, skömmu eftir fæðingu Jóhannesar, brugðu þau hjón, Sigrún og Magnús, búi á Móum, enda leiguliðar og höfðu ekki fjárráð til þess að festa kaup á jörðinni. Fluttust þau hjónin með börnin níu, sem á lífi voru, til Reykjavíkur í íbúð er þau keyptu á Framnesvegi 1C. Síðar fluttist fjölskyldan að Fjölnisvegi hér í borg. Magnús stundaði eftir það verkamannavinnu í Reykjavík, fyrst hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur og síðan hjá Reykjavíkurborg. Hann and- aðist 1945. Sigrún varð bráðkvödd á 23. aldursári Jóhannesar, 4. maí 1955. Hafði hún þá misst sjö af tíu sonum sínum. Jóhannes Magnússon naut aðeins í uppvexti barnaskólanáms. Eftir ferm- ingu réðst hann til sendiferða í Út- vegsbanka íslands og var við þá iðju í tæp þrjú ár. Hann hóf síðan verzlunarstörf, fyrst hjá bróður sínum og síðan hjá ýmsum þekktum verzlunarfyrirtækjum hér í borg. Aftur kom hann til starfa í Útvegs- banka íslands 1. desember 1968 og starfaði þar til dauðadags, fyrst við al- menn afgreiðslustörf í innheimtu- og verðbréfadeild bankans og hafði þá með höndum síðari árin ráðgjafastörf og var deildarstjóri í verðbréfadeild. — Minning Þann 1. desember 1961 kvæntist Jó- hannes eftirlifandi konu sinni, Ing- veldi Húbertsdóttur, ættaðri úr Hafn- arfirði, dóttir Kristínar Eyjólfsdóttur og Húberts Ágústssonar, mat- sveins. Ingveldur og Jóhannes áttu lengst af heimili í Hraunbæ 34 í Ár- bæjarhverfi hér í borg en fluttust á síðastliðnu ári að Neshaga 4. Á heimili þeirra ólst upp dóttir Ingveldar, Kristín, er fæddist 14. október 1953 og gekk Jóhannes henni í föðurstað. Hún er nú gift Gunnari Jónssyni tollþjóni. Þau Ingveldur og Jóhannes eignuðust tvö börn, Húbert Nóa, sem stundar nú, að stúdentsnámi loknu, nám í Mynd- listarskóla íslands. Sambýliskona hans er Guðrún Erlingsdóttir, hjúkrunar- fræðinemi í Háskóla íslands, og Sigrún, fædd fædd 18. janúar 1970, er dvelur í foreldrahúsum. Jóhannes Magnússon var að upplagi áhugasamur um margvísleg félagsmál og lét jafnan að sér kveða þegar til átaka kom. Honum var í blóð borið að bera fyrir brjósti hag lítilmagnans og rétta hjálparhönd þeim, sem staðið hafa höllum fæti í lífsbaráttunni. Það hefur verið hans aðall síðast- liðinn aldarfjórðung. Ég hefi þekkt Jóhannes Magnússon allt frá því hann hóf sendisveinsstörf í

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.