Bankablaðið - 01.12.1985, Page 27
27
Útvegsbanka íslands og fylgst síðan
nokkuð með ferli hans allt til þess að
hann hóf störf öðru sinni í bankanum 1.
desember 1968. Síðan hafa vinátta
okkar og samstarf staðið óslitið. Á ég
um hvort tveggja undurfagrar endur-
minningar og ógleymanlegar.
Hann tók fyrsta sinni þátt í stjórn-
arstörfum í starfsmannafélagi Útvegs-
bankans í ársbyrjun 1971 og var síðan
ritari félagsins í fimm ár og formaður í
sex ár, allt til ársins 1983. Á ný tók hann
við formennsku í félaginu á þessu ári.
Jóhannes var jafnan fulltrúi félags-
ins á þingum Sambands íslenskra
bankamanna og starfaði í mörgum
nefndum á vegum samtakanna m.a. að
undirbúningi og gerð launasamninga,
var fulltrúi Starfsmannafélags Út-
vegsbankans á fundum bankaráðs,
þegar málefni starfsmanna voru til
umræðu og meðferðar.
í ritnefnd Bankablaðsins var hann
1974. Jóhannes Magnússon hóf þátt-
töku í störfum AA-samtakanna 1960 og
hefir síðan verið í forystuliði þess fé-
lagsskapar. Nánir samverkamenn
hans munu minnast þeirra starfa, en
fullviss er ég þess, að orðstír hans á því
sviði deyr aldrei.
Að leiðarlokum, þegar ég kveð vin
minn Jóhannes Magnússon, sækja
söknuður og tómleiki á hugann, að hafa
séð á bak jafn trúverðugum og góðum
dreng og hann reyndist í raun, og
hvívetna í skyldustörfum og félags-
málum, en huggun í andstreymi eru
bjartar og fagrar endurminningar.
Ég votta Ingveldi, börnum þeirra,
systkinum Jóhannesar og ástvinum
þeirra einlæga hluttekningu og samúð.
Adolf Bjömsson.
TÖLVUNÁMSKEIÐ
Tölvufræöslan heldur fjölbreytt og skemmtileg tölvunámskeið fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir.
Á vorönn 1986 er meðal annars boðið upp á eftirfarandi námskeið:
BYRJENDANÁMSKEIÐ: UNGLINGANÁMSKEIÐ:
Tölvunámskeið fyrir fullorðna 12 klst. byrjenda- námskeið, sem kynnir vel undirstöðuatriöin við notkun tölva, forritun í BASIC, ritvinnslu og notkun töflureikna og gagnasafnskerfa. 12 klst. námskeið fyrir unglinga Kennd eru undirstöðuatriðin við i BASIC og notkun töflureikna. á aldrinum 13-16 ára. notkun tölva, forritun í
NOTENDAHUGBÚNAÐUR:
Ritvinnslukerfið WORD Ritvinnslukerfið WORD PERFECT Ritvinnslukerfið IBM-writing assistant Ritvinnslukerfið Ritvinnsla II
Ritvinnslukerfið APPLEWORKS Töflureiknirinn MULTIPLAN Gagnasafnskerfin D-base II D-base III Fjölnotakerfið APPLEWORKS
Fjölnotakerfið Symphony Fjölnotakerfið Framework Launaforritið Laun Fjölnotakerfið IBM-assistant serian
FORRITUNARNÁMSKEIÐ: BASIC I BASIC II COBOLI PASCALI COBOLII PASCAL 11 ASSEMBLER 6502 ASSEMBLER 8088
TÖLVUKYNNINGAR: IBM-PC AMSTRAD APPLEIIe MACINTOSH COMMODORE BBC
ÝMIS NÁMSKEIÐ: Tölvur og tónlist Upplýsingabankar Tölvutelex
?i
ae •
Einnig eru haldin sérstök námskeið fyrir starfsfólk fyrirtækja og stofnana, bæði í Reykjavíkog úti á landi.
Verið velkomin á námskeið TÖLVUFRÆÐSLUNNAR.
Tölvufræðslan
Armula 36 Reykjavík Símar: 687590 og 686790.