Bankablaðið - 01.12.1985, Qupperneq 35
Frá starfsmannafélögunum
35
Frá Félagi starfsmanna
Landsbanka íslands
Þau voru „Með á nótunum”
John Sigurðsson, Ólöf Magnúsdóttir og Gústaf Jóhannesson.
Félag starfsmanna Landsbanka ís-
lands varð 57 ára 7. marz s.l., og eru
félagsmenn þess nú um 1200.
Segja má að starfsemi F.S.L.Í. sé í
nokkuð föstum farvegi, sem byggir á
margra ára reynslu. Auk þess starfs
sem unnið er af stjórn félagsins er
mikið starf unnið af hinum ýmsu
nefndum þess.
Árlega er kosið í stjórn og nefndir
félagsins. Á því viss endurnýjun sér
ávallt stað þar, og með nýju fólki koma
nýjar hugmyndir.
Stjórn félagsins þetta starfsárið
skipa þau: Gunnar H. Helgason, for-
maður, Sigurjón Gunnarsson, varafor-
maður, Vigdís Jónsdóttir, ritari,
Kristín Þorvaldsdóttir, gjaldkeri og
meðstjórnendur eru Brynhildur Erla
Pálsdóttir, Halldóra Sveinbjörnsdóttir
og Tryggvi Hjörvar.
Frá starfi stjórnar.
Stjórn F.S.L.Í. hefur ætíð lagt
áherslu á að halda góðum tengslum við
félagsmenn og hafa í því skyni verið
haldnir fundir með starfsmönnum í
hverjum landsfjórðungi. Hafa fundir
þessir verið mjög vel sóttir og fjör-
legar umræður verið um starfsmanna-
mál.
Laugardaginn 21. september s.l. hélt
stjórnin fund á Egilsstöðum með fé-
lagsmönnum á Austurlandi. Því miður
sáu starfsmenn frá Höfn og Djúpavogi
sér ekki fært að mæta, en öll önnur
útibú á Austurlandi áttu þar fulltrúa,
og voru fundarmenn alls um 40.
Spunnust miklar umræður um líf-
eyrismál, launamál, fræðslumál og
orlofsbúðamál. Létu fundarmenn
óspart í ljós skoðanir sínar á þessum
málum og lögðu fram hugmyndir um
það sem betur má fara. Þá var ekki
farið leynt með álit á landi félagsins
við Lagarfljót og fannst sumum þar
hægt hafa gengið. Fundartíminn
reyndist allt of stuttur, en hann var
takmarkaður af fundi SÍB er haldinn
var þar sama dag. Voru skiptar skoð-
anir um hvort stefna ætti starfs-
mönnum frá svo mörgum útibúum á
einn fund, sem nú, eða hitta fámennari
hópa á fleiri stöðum.
Næsta dag, sunnudaginn 20., var
farið í skoðunarferð um nágrennið og
m.a. gengið um land félagsins við
Lagarfljót. Heyrðust þar raddir um að
landið væri mjög fallegt og eigulegt.
Veðrið var þessa daga eins og best
verður á kosið, sólskin og blíða, þó
farið væri að kólna, og haustlitirnir í
náttúrunni voru ævintýri líkast.
Nú í haust hefur starfsmannafélagið
gengist fyrir námskeiðum í skraut-
skrift, undir leiðsögn Jens Guðmunds-
sonar og í peysuprjóni undir leiðsögn
Margrétar Gunnlaugsdóttur. Þátttak-
an varð það mikil að færri komust að
en vildu. Verður vonandi hægt að anna
eftirspurninni með því að halda önnur
námskeið eftir áramót.
5. nóvember s.l. boðaði stjórnin til
almenns félagsfundar, þar sem yfir-
standandi skipulagsbreytingar innan
Landsbankans voru kynntar. Hinir 7
nýskipuðu framkvæmdastjórar höfðu
þar framsögu og svöruðu síðan fyrir-
spurnum fundarmanna. Stjórn starfs-
mannafélagsins stóð fyrir þeirri ný-
breytni að taka fundinn upp á mynd-
band, svo félagsmenn okkar á lands-
byggðinni megi fræðast um þessi mál.
Þá gekkst stjórnin fyrir fjölmennri
skoðunar- og fræðsluferð til Garð-
yrkjuskóla ríkisins í Ölfusi s.l. vor og
28. apríl tók lið frá Landsbankanum,
skipað þeim Ólöfu Magnúsdóttur,
Múlaútibúi, John Sigurðssyni, aðal-
banka og Gústaf Jóhannessyni, Veð-
deild, þátt í útvarpsþættinum Með á
nótunum, sem er spurningakeppni
stofnana. Eins og við var að búast stóðu
þau sig með mestu prýði, en urðu í
lokin að láta í minni pokann fyrir liði
Búnaðarbankans, er sigraði með 15
stigum gegn 13.
Starfið með eftirlaunaþegum.
Kristín Pálsdóttir er trúnaðarmaður
eftirlaunaþega. Hún er tengiliður milli
þeirra og starfs félagsins og hefur
fastan viðtalstíma á skrifstofu félags-
ins.
Um 90 manns sóttu hina árlegu síð-
degisskemmtun með eftirlaunaþegum.
í þeim hópi voru bæði eftirlaunaþegar
og núverandi starfsmenn, ásamt mök-
um. Alþingismennirnir Helgi Seljan og
Karvel Pálmason fluttu þar gamanmál
við góðar undirtektir.
Sumarferð eftirlaunaþega var farin
22. júní. Farin var dagsferð um Suð-
urland og útibú Landsbankans á
Hvolsvelli heimsótt.
Frá starfi nefnda félagsins.
Árshátíð starfsmanna var haldin á
Hótel Sögu 3. maí og hafði skemmti-