Bankablaðið - 01.12.1985, Page 37
37
Hér er óspart tekið til matar síns, enda er grillmatur hvergi betri en úti í guðsgrænni
náttúrunni.
Sveit Landsbankans, skipuð þeim
Hilmari Viggóssyni, Jóhanni Erni og
Vilhjálmi, lenti í 12. sæti.
Spilanefnd sér um að halda mönnum
við efnið í bridge og félagsvist. Á af-
mælismóti SÍB í bridge var keppt í
tveimur riðlum og vannst annar af Þor-
steini Laufdal og Þresti Sveinssyni frá
Landsbankanum. Landsbankamenn
sendu eina sveit til þátttöku í Stofn-
anakeppni í bridge og stóð hún sig
frábærlega, lenti í 2.—4. sæti af 28
sveitum. í október stóð nefndin fyrir
kynningu á Tarot spilunum og varð þar
margur bæði fróðari og forvitnari um
leyndardóma þeirra.
Seljanefnd hefur umsjón með orlofs-
húsum Landsbankans. Starfsmannafé-
lagið hefur nú til afnota 14 hús í Selvík
við Álftavatn, 5 í Fnjóskadal og 1 við
ísafjörð. Starfsmannafélagið stendur
árlega fyrir vinnuferð í Selvík og er þá
unnið að ýmsum lagfæringum og hlúð
að gróðri. Öll sú aðstaða sem þar er
boðið upp á er óspart nýtt, s.s. mini-
golfið, gufubaðið og sólarlampinn.
Margur tekur veiðistöngina með sér er
hann rær út á vatnið og tekst stundum
að krækja í fisk. Senn líður að því að
félagsmiðstöðin í Selvík verður tekin í
notkun. Er það mikið tilhlökkunarefni
því þar verður aðstaða fyrir kennslu og
ýmis konar fræðslu fyrir félagsmenn.
Styrkir úr námssjóði.
Stjórn Námssjóðs annast úthlutun úr
sjóðnum. Eru það styrkir til kynnis-
ferða erlendis og námsstyrkir til auk-
innar menntunar. Fyrir árið 1985 voru
veittir 6 kynnisfararstyrkir og hlutu
þá: Hilmar Viggósson, Jóhann Örn
Sigurjónsson, Málhildur Traustadótt-
ir, Sigurður Jóhannsson, Sveinn
Sveinsson og Þóra Stefánsdóttir.
Námsstyrkina, 7 að tölu, hlutu: Ásta
Árnadóttir til 3ja mán. náms í Eng-
landi, Guðjón Gunnarsson til 6 vikna
náms í Englandi, Kristín Benedikts-
dóttir til 2ja mán. náms í Bandaríkj-
unum, Ragnhildur Ásmundsdóttir til
3ja mán. náms í Englandi, Sigurður Ó.
Pétursson til 2ja mán. náms í Svíþjóð
og Soffía Bragadóttir til 2ja mán. náms
í Danmörku.
Trúnaðarmenn.
Trúnaðarmenn félagsins eru mjög
mikilvægur hlekkur í allri starfsemi
félagsins. Þeir eru tengiliðir starfs-
manna við stjórn F.S.L.Í., við S.Í.B. og
yfirmenn bankans. Af þessu má sjá að
starf þeirra er mjög ábyrgðarmikið og
hefur stjórn F.S.L.Í. því ávallt kapp-
kostað að hafa sem best tengsl við þá.
Skrifstofa F.S.L.Í.
Sumarið 1984 urðu starfsmanna-
skipti á skrifstofu F.S.L.Í. Björg Árna-
dóttir, sem var fyrsti starfsmaður fé-
lagsins lét af störfum og við tók
Guðrún Anna Antonsdóttir, er áður
hafði starfað í 18 ár hjá Landsbank-
anum.
Hér hefur aðeins verið tæpt á
nokkrum atriðum úr starfi F.S.L.Í. Að
lokum eru settar fram óskir um að sem
flestir starfsmenn Landsbankans
verði virkir í starfsmannafélaginu og
stuðli þannig að öflugu félagsstarfi
bankanum og starfsmönnum til hags-
bóta.
Afmæli
Það gerist ekki oft að sama mann-
eskjan starfi í fimmtíu ár á sama
vinnustaðnum. Þetta á nú samt við um
hana Þorbjörgu Björnsdóttur í endur-
skoðunardeild Landsbankans. Okkur
finnst tilvalið að birta hér mynd af
Þorbjörgu og greinarstúf sem Þorkell
Egilsson ritaði í Fréttabréf þeirra.
Á 50 ára starfsafmæli Þorbjargar.
Kristín Þorvaldsdsóttir, Gunnar Hans
Helgason, Þorbjörg Björnsdóttir, Sigurjón
Gunnarsson og Tryggvi Hjörvar.
50 ára starfsafmæli
Hún Tobba er alveg met, enda setti
hún eitt hér á dögunum, sem engar
líkur eru á að verði nokkurn tíma
slegið. Hinn 8. maí sl. hafði hún unnið í
endurskoðunardeildinni í 50 ár. Hún
hefur verið virkur þátttakandi í
breytingum en alltaf, á sinn hreina og
beina hátt haft vönduð vinnubrögð,
alveg óhrædd við að segja þeim til
syndanna sem ekki standa nógu vel að
verki og eiga að vita betur. Oftast
hjálpar hún þó og leiðbeinir og er mikið
leitað til hennar um aðstoð frá af-
greiðslustöðum bankans um allt land.
Vinnufélagar í deildinni eru orðnir
margir. Fjöldi ungs fólks hefur lent í
uppeldi hjá Tobbu. Henni hefur meira
að segja tekist að kenna sumum
mannasiði.
Á þessum tímamótum óska ég
bankanum og okkur samstarfs-
mönnum öllum til hamingju með
hana Tobbu, en henni sjálfri alls
velfarnaðar í framtíðinni.