Jazzblaðið - 01.04.1951, Qupperneq 7
Dick Katz, Laurie Deniz, Ray EUington og
Coleridge Goode.
um, að öllum frístundum sínum varði
hann til þess að læra á trommu.
Árið 1933 fékk hann sína fyrstu
stöðu sem trommuleikari. Var það i
Park Lane hótelinu í hljómsveit negrans
Rudolph Dunbar, sem lék á klarinet. —
Auk þess lék hann í jam-sessionum, sem
haldnar voru í ýmsum næturklúbbum.
Litu þá oft inn frægir amerískir hljóð-
færaleikarar og léku með. Má þar t. d.
nefna þá Coleman Hawkins, Benny
Carter og „Fats“ Waller. Lærði Ray
mikið af þeim, og gáfu þeir honum oft
holl og góð ráð.
Fyrstu kynni sín af stórum hljóm-
sveitum fékk hann, þegar hann lék fyrir
Van Phillips, en þaðan réðst hann til
Harry Roy sem trommuleikari og söngv-
ari. Þar var hann í 5 ár, eða þangað
til styrjöldin síðari skall á. Þá réðst
hann í flugherinn sem tónlistarmaður
og leikfimisþjálfari. Síðar vann hann
við akstur milli Skotlands og London.
Ok hann þar geysistórum hlössum af
sprengjum og flugvélum.
Þá réðst hann til hins franska fiðlu-
leikara Stephan Grappelly, og komu þeir
fram í útvarpi, kvikmyndum og á plöt-
um. — Að lokum réðst hann svo sem
söngvari í útvarpssextett Tito Burns,
þar fékk hann þá hugmynd að stofna
Ray Ellington kvartettinn.
PÍANÓLEIKARINN
DICK KATZ
Hann er almennt talinn með þremur
beztu píanóleikurum Englands.
Áður en hann yfirgaf Holland 1935,
fékk hann sín fyrstu kynni af negra-
hljómsveit, þegar hann lék fyrir Willie
Lewis. Einnig lék hann undir hjá tríói,
sem lék í Hilversum-útvarpið. Hann
segist ekki hafa leikið neitt að ráði
fyrr en hann réðist í kvartettinn, en þó
lék hann stundum árið 1940 með út-
varpssextett Harry Parry.
í 8 ár var leikur hans vinsæll í klúbb-
um Lundúnaborgar og lék hann lengi
í „Café Society" og „Caribbeau“. — Lék
hann þá oft með Colridge Goode, Lau-
deric Caton og Laurie og Frank Deniz.
Dick er ágætur málamaður og getur
talað jöfnum höndum þýzku, frönsku,
hollenzku og — auðvitað — ensku.
Hann vinnur ekki aðeins sem tón-
listamaður fyrir kvartettinn, heldur er
hann framkvæmdastjóri þeirra og fjár-
málasérfræðingur.
COLRIDGE GOODE
Colridge Goode kom til Englands frá
Jamaica 1936 til þess að læra vélvirkj-
un. Hann er af músíkölsku fólki kominn
og lék hann fyrst á fiðlu. Ekki dvaldist
hann lengi við vélvirkjanámið, heldur
fór að æfa sig á kontrabassa og áður en
varði var hann farinn að leika með
mönnum eins og Johnny Claess, Eric
Winston og Caribbeau Tríóinu.
Síðari hluta ársins 1947 réði Ray hann