Jazzblaðið - 01.04.1951, Blaðsíða 13
Fremstu
{Mar
Englands
Svavar Gests tók saman
Hinar árlegu kosningar enska tón-
listablaðsins „Melody Maker“ voru að
nokkru leyti svipaðar og í fyrra, en þá
voru'nöfn þriggja fyrstu manna á hvert
hljóðfæri birt hér í blaðinu.
Að þessu sinni vekur athygli hinn þre-
faldi sigur Johnny Dankworth. Hann er
kosinn bezti altó-sax.leikarinn, hljóm-
sveit hans er fremst í hópi litlu hljóm-
sveitanna og að lokum er hann kosinn
„hljóðfæraleikari ársins“. Engan undr-
ar fyrsta sæti hans á altó, og ekki held-
ur sæti hans sem hljóðfæraleikari árs-
ins, en hitt kemur mjög á óvart, að
hljómsveit hans, sem er tæplega árs-
gömul skuli fara fram úr hinum þekkta
Ray Ellington kvartett og Tito Burns
sextettinum. Ray Ellington kvartettinn
varð nr. 2 og Tito nr. 4. Sextett Ralph
Sharon er nr. 3. Hljómsveit tenóristans
Kenny Graham varð númer 5, en hann
er sjálfur nr. 2 sem hljóðfæraleikari
ársins og nr. 3 á tenór. Þar eru á undan
honum hinn ósigrandi Ronnie Scott nr. 1
og Tommy Whittle nr. 2.
Ronnie Chamberlain kemur næstur
Dankworth á altó og er hann einnig
fremstur á sópran-saxófón. Þriðji á altó
er Les Gilbert hjá Ted Heath.
Á baritón er Dave Shand fremstur
og auðvitað Jackie Armstrong á trom-
bón. Síðan koma hinir þekktu trombón-
istar Gordon Langhorn og George Chis-
holm. Enn einu sinni er Kenny Baker
Johnny Dankivorth
fremstur á trompet. Síðan koma þeir
Albert Hall og Dixieland trompetleikar-
arnir Humprey Littleton og Freddy
Randall. Sid Phillip, Henry McKenzie
og Nat Temple eru fremstir á klarinet,
en varla hægt að telja þá reglulega jazz-
leikara.
Rhythmahljóðfærin koma næst og ber
þar fyrst að telja píanistann Ralph
Sharon, sem verið hefur ósigrandi síðan
George Sheararing fór til USA. Næst-
ur honum kemur svo Steve Race, sem
lék hér á sínum tíma með B. Feather-
#a»tUiS 13